„(ı verol)dv værı ıanrækn“
„ullaulug let ıalla“
„el ek ſolar baul“
„du|alınſ leıka“
Þar sem Skáldskaparmálum lýkur er afgangurinn af blaðinu nýttur fyrir ættartölur: (a) frá Hvamm-Sturlu til Þorleifs hins haga, (b) frá Adam til Péturs Jónssonar, (c) frá Sturlu í Hvammi til Ketils og frá Kveldúlfi til Snorra (Sturlusonar). Síðastnefnda ættartalan er á ytri spássíu og hefur skaddast við afskurð.
Upphafsstafir með svörtu bleki.
Band frá því í júlí 1978.
Handritinu fylgja uppskriftir Árna Magnússonar og Jóns Ólafssonar úr Grunnavík af tveimur fyrstnefndu ættartölunum (sjá að ofan) og hefur Jón aukið við athugasemdum, sumum hverjum persónulegum.
Handritið er tímasett um 1400 (sjá Katalog II , bls. 175 og ONPRegistre , bls. 464).
Samkvæmt handritaskrá Árna Magnússonar (AM 435 a 4to, bl. 93v-95r) fékk hann þetta handrit ásamt AM 748 I 4to að gjöf árið 1691 frá séra Halldóri Torfasyni á Bæ (Gaulverjabæ) í Flóa. Þá var utan um handritið kápa er áður hafði verið notuð utan um verk eftir Lipsius og Árni telur óefað komna úr bókasafni Brynjólfs Sveinssonar biskups.
Stofun Árna Magnússonar á Íslandi tók við handritinu 20. júlí 1979.
Tekið eftir Katalog II , bls. 175 (nr. 1864). Kålund gekk frá handritinu til skráningar ?. Haraldur Bernharðsson skráði 30. apríl 2001.
Birgitte Dall gerði við handritið og batt það í júlí 1978. Eldra band fylgdi.
Svart-hvítar ljósmyndir á Det Arnamagnæanske Institut í Kaupmannahöfn.