„DIARIUM ANNUUM Þad er Daga Tal Sierhvors Ärs … ſamannteked. Af G.B.S.P… M.DC.XXX“
Rímtal með tilheyrandi útskýringum og tímatöflum yfir einstök ár. Bl. 3v-5r auð.
Upphafsstafir og fyrirsagnir í mörgum litum.
Nótnaskrift á bókfelli í eldra bandi.
Band frá því í mars 1979.
Í eldra bandi var bókfell úr latneskri messubók með nótnaskrift.
Handritið er tímasett til 17. aldar í Katalog II , bls. 157, en rímtalið var samið 1630 (sjá titil).
Árni Magnússon fékk hjá Þormóði Torfasyni í október 1712 (sjá seðil).
Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við handritinu 20. september 1979.
Tekið eftir Katalog II , bls. 157 (nr. 1830). Kålund gekk frá handritinu til skráningar í október 188?. ÞS skráði 4. október 2001.
Viðgert og bundið af Birgitte Dall í mars 1979. Eldra band fylgir.
Svart-hvítar ljósmyndir á Det Arnamagnæanske Institut í Kaupmannahöfn.