„… þó ódyggð hefði mig …“
„… aumum þræl þrenning sæl …“
Óheilt, vantar framan og aftan af.
Kvæðið er t.d. prentað í Vísnabók Guðbrands 2000:106-110 .
Skrift máð og illlæsileg.
Kvæðið er t.d. prentað í Vísnabók Guðbrands 2000:115-119 .
Blöðin eru ótölusett.
Bl. 1: Sumir stórir stafir örlítið flúraðir.
Undir texta á 2r má greina tóma nótnastrengi.
Band frá ágúst 1967 (244 mm x 248 mm x 2 mm). Pappakápa með línkili. Blöðin eru límd á móttak. Handritið liggur í öskju með öðrum handritum í AM 720 a I-XI 4to.
Handritið er skrifað á Íslandi. Kålund tímasetur það til 16. aldar ( Katalog II 1894:146 ). Jón Þorkelsson telur það hins vegar skrifað um 1600 ( 1888:443 ). Höndin á 2r virðist eitthvað yngri en sú á bl. 1.
Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við handritinu 18. október 1988.
Viðgert og bundið í Kaupmannahöfn í ágúst 1967.
Árni Magnússon skildi blöðin að og þvoði þau (sbr. seðil).
Svart-hvítar ljósmyndir á Det Arnamagnæanske Institut í Kaupmannahöfn.