Ein hönd.
Árni Magnússon skrifar 1. erindi Maríukvæðisins María móðirin skæra með lesbrigðum á saurblað.
Fastur seðill (164 mm x 106 mm) með hendi Árna Magnússonar: „María móðirin skæra/ meyjanna ertu blóm/ þér hæfir heiður og æra/ helst að mínum dóm. En þó lýðurinn lasti mig/ tigna vil ég tíginn guð en trúa samt á þig. Aliter[?] trúa vil ég á tiginn guð en tigna í hófi þig. Jafnan að sömu/ eru treysta samt á þig[?].“
Skrifað eftir Guðrúnu Helgadóttur 7. október 1673 (sbr. aftast í handritinu).
Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við handritinu 29. október 1979.
Tekið eftir Katalog II , bls. 141-142 (nr. 1809). Kålund gekk frá handritinu til skráningar í október 188?. ÞS skráði 3. október 2001.