„Hér byrjar kvæði er Hugbót heitir“
„Herra Jesús hreinn og trúr“
Skrifað eftir skinnbók frá sr. Magnúsi Markússyni (bl. 11r). Á bl. 5r er einungis 1 lína. Bl. 5v autt.
Ein hönd.
Með leiðréttingum Árna Magnússonar.
Efst á 1. blaði stendur með hendi Árna Magnússonar: „Ex membrana recentiore, communicata per Magnum Marci, rectorem scholæ Scalholt.“
Með hendi Jóns Torfasonar og tímasett til upphafs 18. aldar í Katalog II , bls. 138.
Samkvæmt AM 477 fol. voru einnig í AM 716 4to eftirfarandi kvæði, sem eru þar ekki lengur: Píslarminning eignuð Kolbeini Grímssyni, upphaf: Sárt er sverð í nurum, Harmagrátur, upphaf: Einn Guð almáttugur og Hugræða, upphaf: Einn og þrennur allsvaldandi herra, öll með einni hendi, með settaskrift.
Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við handritinu 16. nóvember 1978.
Tekið eftir Katalog II , bls. 138 (nr. 1798). Kålund gekk frá handritinu til skráningar í október 188?. ÞS skráði 27. september 2001.
Svart-hvítar ljósmyndir á Det Arnamagnæanske Institut í Kaupmannahöfn.