Skráningarfærsla handrits

AM 716 e 4to

Niðurstigningarvísur

Tungumál textans
íslenska

Innihald

(1r-11r)
Niðurstigningarvísur
Titill í handriti

Nidurſtigs wysur, ortar af | Byskupe Ione

Upphaf

Dirfð mín er að dikta …

Athugasemd

Bl. 11v er autt.

Efnisorð

Lýsing á handriti

Blaðefni
Pappír.
Blaðfjöldi
11 blöð.
Umbrot

Skrifarar og skrift

Ein hönd.

Band

Fylgigögn

Fastur seðill (165 mm x 98 mm) með hendi Árna Magnússonar: Eftir hverju þetta sé skrifað, man ég nú eigi. Ég trúi, að á Magnúsar Markússonar væri engar Niðurstigningarvísur.

Uppruni og ferill

Uppruni

Með hendi Jóns Torfasonar og tímasett til upphafs 18. aldar í  Katalog II , bls. 136.

Samkvæmt AM 477 fol. voru einnig í AM 716 4to eftirfarandi kvæði, sem eru þar ekki lengur: Píslarminning eignuð Kolbeini Grímssyni, upphaf: Sárt er sverð í nurum, Harmagrátur, upphaf: Einn Guð almáttugur og Hugræða, upphaf: Einn og þrennur allsvaldandi herra, öll með einni hendi, með settaskrift.

Aðföng

Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við handritinu 4. október 1979.

Aðrar upplýsingar

Skráningarferill

Tekið eftir Katalog II , bls. 136 (nr. 1789). Kålund gekk frá handritinu til skráningar í október 188?. ÞS skráði 26. september 2001.

Myndir af handritinu

Svart-hvítar ljósmyndir á Det Arnamagnæanske Institut í Kaupmannahöfn.

Notaskrá

Titill: Íslensk miðaldakvæði I.2
Ritstjóri / Útgefandi: Jón Helgason
Titill: Katalog over Den Arnamagnæanske Håndskriftsamling
Ritstjóri / Útgefandi: Kålund, Kristian
Lýsigögn
×

Lýsigögn