Skráningarfærsla handrits

AM 715 b 4to

Lilja ; Ísland, 1700-1725

Tungumál textans
íslenska

Innihald

(1r-7r)
Lilja
Höfundur

Eysteinn Ásgrímsson

Titill í handriti

Lilia. | Eptir Membrana Ecke gamallre stafrett skrifud

Athugasemd

Bl. 7v og neðri helmingur 7r eru auð.

Skrifuð eftir kálfskinnsbók sem kom frá Bólstaðarhlíð (sjá saurblað).

Efnisorð

Lýsing á handriti

Blaðefni
Pappír.
Blaðfjöldi
7 blöð ().
Umbrot

Skrifarar og skrift

Ein hönd.

Spássíugreinar og aðrar viðbætur

  • Bl. 7 innskotsblað frá Árna Magnússyni.
  • Árni Magnússon skrifar á saurblað: Lilja skrifuð eftir kálfskinni er fannst í Bólstaðahlíð eftir Þorstein Benediktsson. Var þessi membrana atkvæðalítil eftir því sem mér skrifaði vísilögmaðurinn Páll Jónsson Vídalín, er þetta exemplar mér sent hefur. Á sama kálfsinni var Píslargrátur, af hverjum ég og hefi copiu með þessari sömu hendi.

Band

Fylgigögn

Fastur seðill (209 mm x 167 mm) með hendi Árna Magnússonar: Lilja skrifuð eftir kálfskinni er fannst í Bólstaðahlíð eftir Þorstein Benediktsson. Var þessi membrana atkvæðalítil eftir því sem mér skrifaði vísilögmaðurinn Páll Jónsson Vídalín, er þetta exemplar mér sent hefur. Á sama kálfsinni var Píslargrátur, af hverjum ég og hefi copiu með þessari sömu hendi.

Uppruni og ferill

Uppruni

Með sömu hendi og AM 715 c 4to og tímasett til upphafs 18. aldar í  Katalog II , bls. 133.

Samkvæmt AM 477 fol. voru í AM 715 4to einnig annað eintak af Píslargráti með hendi Árna Magnússonar og Ljómur Jóns Arasonar með hendi Jóns Ólafssonar.

Ferill

Páll Vídalín fékk eftir Þorstein Benediktsson í Bólstaðarhlíð og sendi Árna Magnússyni (sjá saurblað).

Aðföng

Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við handritinu 27. maí 1983.

Aðrar upplýsingar

Skráningarferill

Tekið eftir Katalog II , bls. 133 (nr. 1779). Kålund gekk frá handritinu til skráningar í október 188?. ÞS skráði 25. september 2001.

Myndir af handritinu

Svart-hvítar ljósmyndir á Det Arnamagnæanske Institut í Kaupmannahöfn.

Notaskrá

Titill: Íslensk miðaldakvæði I.2
Ritstjóri / Útgefandi: Jón Helgason
Titill: Katalog over Den Arnamagnæanske Håndskriftsamling
Ritstjóri / Útgefandi: Kålund, Kristian
Lýsigögn
×
Efni skjals
×
  1. Lilja

Lýsigögn