„Bioda vil eg þier bragsins smid“
Þessar vísur eru nefndar Vitjunardiktur hjá Jóni Þorkelssyni:1888:45 .
Athugasemd Árna Magnússonar um uppskriftina á bl. 1r. Samkvæmt henni eru vísurnar skrifaðar eftir handriti með hendi Guðrúnar Hákonardóttur á Sólheimum í Mýrdal.
Bl. 1v autt.
„Allra kærasta jungfru min“
Bl. 9r-10v, 11v og 15v auð.
Athugasemd Árna Magnússonar um uppskriftina á bl. 11r. Samkvæmt henni eru vísurnar skrifaðar eftir kálfskinnsrúllu frá c1520-40, en sú rúlla hefur eyðilagst 1728. Eftir sömu rúllu hefur verið skrifað kvæði um heilaga Önnu, en Kålund telur að sú uppskrift hafi glatast.
„Mariu visur Hallz pr.“
„Sæluzt siofar stiarna“
Bl. 16r-18v og 19v auð.
Athugasemd Árna Magnússonar um uppskriftina á bl. 19r. Samkvæmt henni eru vísurnar skrifaðar eftir handriti í kvartóbroti (Hólmsbókinni) sem Árni fékk frá Þórði Péturssyni.
Titill á bl. 20r.
„Maria heyr mig haleitt vif“
Bl. 29r-30v auð.
Athugasemd Árna Magnússonar um uppskriftina á bl. 31r. Samkvæmt henni eru vísurnar skrifaðar eftir handriti frá Guðrúnu Hákonardóttur á Sólheimum í Mýrdal.
„Heyr skinandi skæruzt fru“
Bl. 34r-34v, 35v-36r og 44r-46v auð.
Athugasemd Árna Magnússonar um uppskriftina á bl. 35r. Samkvæmt henni er hér skrifað eftir vísum sem eru aftan við Konungsskuggsjá og framan við Heimsósóma í skinnhandriti sem Árni fékk frá Guðríði Gísladóttur, þ.e. AM 243 f fol.
Að jafnaði einungis skrifað á versósíður frá bl. 20v.
Skrifað af Árna Magnússyni, en skv. handritaskrá Jóns Ólafssonar úr Grunnavík, AM 477 fol., bl. 48r, á að finnast undir númerinu 711 4to: qvædam vero manu Joh. Olavii (sjá einnig AM 711 a 4to).
Fastur seðill (205 mm x 161 mm) með hendi Árna Magnússonar: „Þessar Maríuvísur (svo ætla ég kvæðið heiti) eru ritaðar eftir hendi Guðrúnar Hákonardóttur á Sólheimum í Mýrdal.“
Skrifað af Árna Magnússyni eftir ýmsum handritum (sbr. athugasemdir). Tímasett til upphafs 18. aldar í Katalog (II) 1894:126 .
Tekið eftir Katalog (II) 1894:126-127 (nr. 1770). Kålund gekk frá handritinu til skráningar í október 188?. DKÞ skráði handritið 7. október 2003.
Svart-hvítar ljósmyndir á Det Arnamagnæanske Institut í Kaupmannahöfn.