Skráningarfærsla handrits

AM 710 g 4to

Helgikvæði

Athugasemd
Skrifað eftir kálfskinnsbók í 4to frá sr. Ólafi Gíslasyni á Hofi í Vopnafirði (sjá bl. 1r).
Tungumál textans
íslenska

Innihald

1 (2r-18v)
Krossvísur
Höfundur

Jón Arason biskup

Athugasemd

Bl. 19-21 auð.

Efnisorð
2 (23r-35v)
Krosskvæði af Kaldaðarneskrossi
Titill í handriti

Kroſſkuędi af Kalldadar neſ|kroſſe

Athugasemd

Bl. 36 autt.

Efnisorð
3 (38r-45v)
Krossþulur
Athugasemd

Árni Magnússon bætir við titilinn: Carmen de Chriſto et Cruce.

Bl. 46 er autt.

Efnisorð
4 (48r-54v)
Krossvísur gömlu
Upphaf

Gud himnanna | grædare manna

Athugasemd

Bl. 55-56 auð.

Efnisorð
5 (58r-66v)
Krossvísur
Athugasemd

Bl. 67-68 auð.

Efnisorð
6 (70r-75r)
Krossvísur
Upphaf

Fyrer lat mier iungfruen hreina

Athugasemd

Bl. 76-78 auð.

Efnisorð
7 (80r-85v)
Ólafs vísur
Upphaf

Herligt folk ok hæverſkar þioder

Efnisorð

Lýsing á handriti

Blaðefni
Pappír
Blaðfjöldi
85 blöð.
Umbrot

Sum kvæðin einungis skrifuð á versó-síður.

Skrifarar og skrift

Ein hönd.

Band

Fylgigögn

Fastur seðill (203 mm x 160 mm) með hendi Árna Magnússonar: Krossvísur þessar eru uppskrifaðar úr þeim rotnu kálfskinnsblöðum in 4to frá síra Ólafi Gíslasyni á Hofi í Vopnafirði.

Uppruni og ferill

Uppruni

Með hendi Árna Magnússonar og tímasett til upphafs 18. aldar í  Katalog II , bls. 124.

Samkvæmt AM 477 fol. voru einnig í AM 710 4to, Þeſse papisk Qvæde ſkrifud ä sinne Bladſidu med hende Jons Olafs ſonar biriaſt ſo: Jöfur gefi upphaf, Pétur er páfi Drottins, Drottinn gef þú mér mátt, Postulann skulum vér prísa leita (um S.P.), Prísa vildi ég prúðan dikt (um S. Jakob), Fljóðið ekki finna má (um S. Mariu), Dýrðarfullur Drottinn, Hlýði allir ýtar snjallir óði mínum, Faðir vor Kristur í friðinum hæsta með hendi Jóns Sigurðssonar og einnig rifrildi af Katrínar kvæði með hendi Jóns Ólafssonar, Rósa byrjast Faðir og Son á hæstum hæðum, skrifuð á aðra hverja blaðsíðu með hendi Árna Magnússonar.

Aðföng

Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við handritinu 5. maí 1983.

Aðrar upplýsingar

Skráningarferill

Tekið eftir Katalog II , bls. 124 (nr. 1765). Kålund gekk frá handritinu til skráningar í október 188?. ÞS skráði 24. september 2001.

Myndir af handritinu

Svart-hvítar ljósmyndir á Det Arnamagnæanske Institut í Kaupmannahöfn.

Notaskrá

Titill: Íslensk miðaldakvæði I.2
Ritstjóri / Útgefandi: Jón Helgason
Titill: Katalog over Den Arnamagnæanske Håndskriftsamling
Ritstjóri / Útgefandi: Kålund, Kristian
Lýsigögn
×

Lýsigögn