Eingöngu skrifað á versó-síður.
Ein hönd
Árni Magnússon greinir frá forriti handritsins á saurblaði og skrifar titil.
Fastur seðill (203 mm x 162 mm) með hendi Árna Magnússonar: „Niðurstigningsvísur (Jóns biskups Arasonar). Úr pergamentsblöðunum frá síra Ólafi Gíslasyni á Hofi.“
Með hendi Jóns Ólafssonar úr Grunnavík (sjá AM 477 fol.) og tímasett til annars fjórðungs 18. aldar, en til upphafs aldarinnar í Katalog II , bls. 123.
Samkvæmt AM 477 fol. voru einnig í AM 710 4to, Þeſse papisk Qvæde ſkrifud ä sinne Bladſidu med hende Jons Olafs ſonar biriaſt ſo: Jöfur gefi upphaf, Pétur er páfi Drottins, Drottinn gef þú mér mátt, Postulann skulum vér prísa leita (um S.P.), Prísa vildi ég prúðan dikt (um S. Jakob), Fljóðið ekki finna má (um S. Mariu), Dýrðarfullur Drottinn, Hlýði allir ýtar snjallir óði mínum, Faðir vor Kristur í friðinum hæsta með hendi Jóns Sigurðssonar og einnig rifrildi af Katrínar kvæði með hendi Jóns Ólafssonar, Rósa byrjast Faðir og Son á hæstum hæðum, skrifuð á aðra hverja blaðsíðu með hendi Árna Magnússonar.
Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við handritinu 14. desember 1978.
Tekið eftir Katalog II , bls. 123 (nr. 1761). Kålund gekk frá handritinu til skráningar í október 188?. ÞS skráði 20. september 2001.
Svart-hvítar ljósmyndir á Det Arnamagnæanske Institut í Kaupmannahöfn.