Brot. Um fæðingu Krists. Efnið virðist skylt innihaldi AM 696 VIII 4to.
Blöðin eru ótölusett.
Tvinn.
Bæði blöðin eru skert að ofan og á ytri kanti vegna afskurðar þannig að annað er aðeins mjór strimill og hitt um helmingur af upprunalegri stærð.
Óþekktur skrifari, árléttiskrift.
Pennakrot á neðri spássíu bl. 1v-2r.
Band frá 1961 (225 mm x 178 mm x 2 mm). Límt og saumað á móttök í pappakápu með fínofnum líndúk á kili. Handritið liggur í pappaöskju ásamt öðrum AM 696 4to-handritum.
Laus seðill frá Kaupmannahöfn með upplýsingum um forvörslu allra brotanna í AM 696 4to liggur í öskju með þeim.
Handritið er skrifað á Íslandi. Það er tímasett til fyrri hluta 16. aldar (sbr. ONPRegistre , bls. 463) en til 15. aldar í Katalog II , bls. 112.
Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við handritinu 6. desember 1991.
Viðgert og sett í sér kápu í Kaupmannahöfn 1961 og yfirfarið aftur þar árið 1991.
Svart-hvítar ljósmyndir á Det Arnamagnæanske Institut í Kaupmannahöfn.