Heilsíðumynd á blaði 1v (sjá Skreytingar).
„Hér byrjar litlu Jóns sögu postula og guðspjallamanns. “
„Sequentes versus decorant beatum Johannem“
„Terrigene promant et olimphi tarma Johanni …“
Uppskrift Árna Magnússonar eftir fjórum fyrstu vísunum, ásamt með titlinum, fylgir á seðli.
Blaðmerkt er 1, 1bis-48.
Sex kver + 4 stök blöð fest sér á móttök. Utan um hvert kver er blaðtvinn úr japönskum handgerðum pappír.
Band (212 null x 175 null x 35 null) er frá síðari hluta 20. aldar.
Spjöld eru klædd fínofnum striga, leðurklæðning er á kili og hornum. Saurblöð fylgja bandi.
Handritið er skrifað á Íslandi. Upprunalegur hluti handritsins, blað 1bisr-4v og 6r-48r er tímasettur til síðari hluta 14. aldar (sbr. ONPRegistre , bls. 458), en til 14. aldar í Katalog II , bls. 53 (um viðbætur sjá hér fyrir ofan).
Bókin var í eigu kirkjunnar á Hofi í Vatnsdal ca 1400 (sbr. blað 33r og 48v og AM 435 a 4to, blað 16v (bls. 12 í prentaðri útgáfu). Síðar virðist hafa átt hana Hallur Þorgrímsson (sbr. blað 28r).
Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við handritinu 6. maí 1996.
Viðgert í maí 1992 til september 1994. Eldra band fylgdi, sem og nákvæm lýsing á viðgerð og ljósmyndun.