Tvö brot.
Fyrra bl. samsvarar texta í Heilagra manna sögum II, bls. 53:25-58:8 og hið síðara bls. 75:22-79:23.
„er hann vıll ok þannvegh ſem hann vıll“
„eına ſtora ponnu a elld matvlıga“
Blöðin eru mjög slitin öðru megin vegna notkunar í band.
Band frá því í mars 1995. Handritið var í bláu hylki með skinni á kili.
Einn seðill með hendi Árna Magnússonar.
Handritið er tímasett c1375-1425 (sjá ONPRegistre , bls. 458) en um 1400 í Katalog II , bls. 50.
Árni Magnússon fékk frá sr. Árna Þorleifssyni 1712 (sjá seðil).
Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við handritinu 14. mars 1996.
Tekið eftir Katalog II , bls. 50 (nr. 1630). Kålund gekk frá handritinu til skráningar í október 188?. ÞS skráði 12. september 2001.
Viðgert og bundið í Kaupmannahöfn í janúar-mars 1995. Gamalt band fylgir ekki. Með fylgir nákvæm lýsing á ljósmyndun, viðgerð og arkaskiptingu.
Viðgert að nýju í Kaupmannahöfn í apríl 1967.
Viðgert í Kaupmannahöfn í október 1963.