Skráningarfærsla handrits

AM 615 h 4to

Rímur ; Ísland, 1600-1700

Athugasemd
Rímur af Appollóníusi, Rímur af Ásmundi og Tryggva og Samstæður Hallgríms Péturssonar
Tungumál textans
íslenska

Innihald

1 (1r-18v)
Rímur af Appollóníusi
Höfundur

Björn Jónsson

Titill í handriti

APOLLONII RMUR

Upphaf

Þögn að lasta mætir menn ...

Niðurlag

... Gud sie med oss øllum

Athugasemd

18 rímur.

Efnisorð
2 (18v-28v)
Rímur af Ásmundi og Tryggva
Titill í handriti

Rÿmur af Asmunde og Triggva

Upphaf

Mín er fánýt fræða mennt ...

Niðurlag

... audnu virdist senda

Athugasemd

12 rímur, óheilar. Vantar lok 3. rímu og upphaf 4. Texti dálítið skertur vegna skemmda (bl. 20).

Efnisorð
3 (28v)
Samstæður
Upphaf

Eitt er við ofi hætt ...

Niðurlag

... lÿka er halldinn djgd rÿk

Notaskrá

Ljóðmæli (2) 2000:71-76.

Lýsing á handriti

Blaðefni
Pappír með vatnsmerkjum.
  • Aðalmerki: Lítið dárahöfuð (bl. 2, 4, 6, 9, 11 ).

Blaðfjöldi
28 blöð (203 +/- 1 mm x 160 +/- 1 mm).
Tölusetning blaða

  • Gömul blaðmerking fyrir miðri neðri spássíu, 69-95 + 80 bis. Blaðmerkingin tekur ekki tillit til þess að blað vantar á eftir bl. 20.
  • Síðari tíma blýantsmerking á stöku stað, 1-28.

Kveraskipan

Þrjú kver:

  • Kver I: 12 blöð, 6 tvinn.
  • Kver II: 8 blöð, 4 tvinn.
  • Kver III: 8 blöð, 4 tvinn.

Umbrot

  • Stærsti hluti 28v er tvídálka.
  • Leturflötur er 180 +/- 1 mm x 135 +/- 1 mm.
  • Línufjöldi er 43-47.
  • Fyrirsagnir erinda á spássíu 28v og yfir dálkum.

Ástand

  • Eitt blað vantar á eftir bl. 20.
  • Á 20r-v hefur efsta línan skerst vegna skemmda.
  • Misstórir blettir víða, en skerða þó ekki textann.

Skrifarar og skrift

Ein hönd, óþekktur skrifari, sprettskrift.

Skreytingar

Upphafsstafir dregnir örlítið stærra.

Spássíugreinar og aðrar viðbætur

  • Lesbrigði og leiðréttingar á spássíum 13v-15r.
  • Áherslumerki á 14r-v
  • Pennakrot á 19v-20r
  • Athugasemd um handritið á neðri spássíu 20v.

Band

Band frá c1772-1780 (210 mm x 164 mm x 9 mm). Pappaspjöld og kjölur klædd handunnum pappír. Efnisyfirlit framan á kápu. Á spjaldblöðum sést spegilmynd af prentuðu máli.

Uppruni og ferill

Uppruni

Skrifað á Íslandi og tímasett til 17. aldar (sjá Katalog (II) 1894:26).

Handritið var áður hluti af stærri bók, nú AM 615 f-m 4to.

Aðföng

Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við handritinu 30. mars 1983.

Aðrar upplýsingar

Skráningarferill

  • MJG uppfærði vatnsmerki með gögnum frá BS, 4. mars 2024.
  • ÞS skráði 17.-22. janúar 2003
  • Kålund gekk frá handritinu til skráningar 10. mars 1888 (Katalog (II) 1894: 26 (nr. 1593)).

Viðgerðarsaga

Viðgert í Kaupmannahöfn af Birgitte Dall 1964.

Myndir af handritinu

  • Svart-hvítar ljósmyndir á Det Arnamagnæanske Institut í Kaupmannahöfn.
  • Filma á handritadeild Landsbókasafns Íslands - Háskólabókasafns.

Notaskrá

Höfundur: Hallgrímur Pétursson
Titill: Ljóðmæli 1
Ritstjóri / Útgefandi: Margrét Eggertsdóttir
Höfundur: Hallgrímur Pétursson
Titill: Ljóðmæli 2
Ritstjóri / Útgefandi: Kristján Eiríksson, Margrét Eggertsdóttir, Svanhildur Óskarsdóttir
Titill: Katalog over Den Arnamagnæanske Håndskriftsamling
Ritstjóri / Útgefandi: Kålund, Kristian
Lýsigögn
×

Lýsigögn