„Rymur Af Siø Vyſu Meiſturum Kued|nar af Byrne Sturla syne“
„Ofrödumm vid orda skortt optt ...“
„... A Huijta ſunnu hliö|dar brief“
Ófullgerð, endar í 3. rímu.
Aðalmerki: Stórt dárahöfuð með fimm bjöllum á kraga (bl. 1, 2, 7 )
Mótmerki: Fangamark „DI“ í ramma (bl. 3, 4, 5, 6 ).
Blaðsíðumerking á rektósíðum, síðari tíma viðbót.
Eitt kver:
Óþekktur skrifari, kansellískrift. Sami skrifari og í AM 615 a 4to osfrv.
Fyrsti upphafsstafurinn, er blekdreginn skrautstafur (ca. 5 línur) með blómaskreytingu. Minni upphafstafir (2-3 línur) eru minna skreyttir.
Fyrirsagnir og fyrsta lína eru dregin hærri og eru smá skreytt.
Skreyting við eða umhverfis griporð. Þau eru skrifuð með fljótaskrift.
Band frá c1772-1780. Pappaspjöld og kjölur klædd handunnum pappír, með prentað mál á spjaldblöðum. Titill og safnmark skrifað framan á kápu með bleki. Tveir límmiðar eru á kili.
Laus seðill frá forvörslu í Kaupmannahöfn, 1991.
Handritið er skrifað á Íslandi og tímasett til síðari helmings 17. aldar í Katalog II, bls. 24. Það hefur upprunalega verið hluti af stærri bók, sem innihélt AM 615 a-c 4to og Árni Magnússon tók í sundur.
Í handritinu voru áður Geiplur með sömu hendi, og Egils rímur Skallagrímssonar með annarri hendi. Sjá einnig AM 615 a-b 4to.
Árni Magnússon fékk úr bók frá Gísla Jónssyni í Mávahlíð 1709, en hana hafði Magnús Björnsson á Bassastöðum í Steingrímsfirði átt, (sjá seðil í AM 615 a fol.)
Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við handritinu 10. júní 1991.
Yfirfarið í Kaupmannahöfn í maí 1991.