Skráningarfærsla handrits

AM 614 e 4to

Valdimars rímur

Innihald

(1r-8v)
Valdimars rímur
Titill í handriti

Þær gömlu Valdimars rímur Þórðar sem var á Strjúgi

Athugasemd

Átta rímur.

Efnisorð

Lýsing á handriti

Blaðefni
Pappír.
Blaðfjöldi
8 blöð ().
Umbrot

Ástand

Blöðin eru mjög slitin á spássíum og bl. 6 illa farið.

Skrifarar og skrift

Ein hönd.

Skreytingar

Fyrirsagnir rauðar.

Band

Uppruni og ferill

Uppruni

Skrifað af Halldóri Guðmundssyni 1656 (sjá saurbl. AM 614 a 4to).

Samkvæmt athugasemd frá Guðbrandi Vigfússyni er höndin Hallgríms Péturssonar, en það er varla rétt, segir Kålund.

Upprunalega hluti af stærra handriti, sem innihélt AM 614 a-f 4to.

Ferill

Árni Magnússon fékk frá sr. Jóni Torfasyni á Breiðabólstað, fyrst að láni en til eignar 1721 (sjá saurblað AM 614 a 4to).

Aðföng

Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við handritinu 30. mars 1983.

Aðrar upplýsingar

Skráningarferill

Tekið eftir Katalog II , bls. 23 (nr. 1584). Kålund gekk frá handritinu til skráningar í október 188?. ÞS skráði 7. september 2001.

Viðgerðarsaga

Gert við í Kaupmannahöfn 1964.

Myndir af handritinu

  • Svart-hvítar ljósmyndir á Det Arnamagnæanske Institut í Kaupmannahöfn.
  • Filma á handritadeild Landsbókasafns Íslands-Háskólabókasafns.

Notaskrá

Höfundur: Björn Karel Þórólfsson
Titill: Rímur fyrir 1600
Höfundur: Jón Þorkelsson
Titill: Íslensk kappakvæði II., Arkiv för nordisk filologi
Umfang: 4
Titill: Katalog over Den Arnamagnæanske Håndskriftsamling
Ritstjóri / Útgefandi: Kålund, Kristian
Höfundur: Stefán Karlsson
Titill: Halldór Guðmundsson, norðlenzkur maður, Opuscula
Umfang: IV
Lýsigögn
×

Lýsigögn