Skráningarfærsla handrits

AM 614 d 4to

Pontus rímur

Tungumál textans
íslenska

Innihald

(1r-37v)
Pontus rímur
Athugasemd

29 rímur. 1.-13. ríma eftir Magnús Jónsson prúða í Ögri, 14.-29. ríma eftir Pétur Einarsson á Ballará (sbr. fyrirsagnir fyrir 1. og 14. rímu).

Efnisorð

Lýsing á handriti

Blaðefni
Pappír
Blaðfjöldi
37 blöð ().
Umbrot

Ástand

Á bl. 25 er stór rifa.

Skrifarar og skrift

Ein hönd.

Skreytingar

Fyrirsagnir rauðar.

Band

Uppruni og ferill

Uppruni

Skrifað af Halldóri Guðmundssyni 1656 (sjá saurbl. AM 614 a 4to).

Samkvæmt athugasemd frá Guðbrandi Vigfússyni er höndin Hallgríms Péturssonar, en það er varla rétt, segir Kålund.

Upprunalega hluti af stærra handriti, sem innihélt AM 614 a-f 4to.

Ferill

Árni Magnússon fékk frá sr. Jóni Torfasyni á Breiðabólstað, fyrst að láni en til eignar 1721 (sjá saurblað AM 614 a 4to).

Aðföng

Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við handritinu 18. apríl 1983.

Aðrar upplýsingar

Skráningarferill

Tekið eftir Katalog II , bls. 23 (nr. 1583). Kålund gekk frá handritinu til skráningar í október 188?. ÞS skráði 7. september 2001.

Viðgerðarsaga

Gert við í Kaupmannahöfn 1964.

Myndir af handritinu

  • Svart-hvítar ljósmyndir á Det Arnamagnæanske Institut í Kaupmannahöfn.
  • Filma á handritadeild Landsbókasafns Íslands-Háskólabókasafns.

Notaskrá

Höfundur: Björn Karel Þórólfsson
Titill: Rímur fyrir 1600
Höfundur: Grímur M. Helgason, Magnús Jónsson, Ólafur Halldórsson, Pétur Einarsson
Titill: Pontus rímur, Rit Rímnafélagsins
Umfang: 10
Titill: Katalog over Den Arnamagnæanske Håndskriftsamling
Ritstjóri / Útgefandi: Kålund, Kristian
Höfundur: Stefán Karlsson
Titill: Halldór Guðmundsson, norðlenzkur maður, Opuscula
Umfang: IV
Lýsigögn
×
Efni skjals
×
  1. Pontus rímur

Lýsigögn