Skráningarfærsla handrits

AM 614 a 4to

Rollants rímur ; Ísland, 1656

Tungumál textans
íslenska

Innihald

(1r-30r)
Rollants rímur
Titill í handriti

Rollants Rymur gỏmlu | ortar af Þorde h. Magnuſsyne

Athugasemd

18 rímur.

Bl. 30v autt.

Efnisorð

Lýsing á handriti

Blaðefni
Pappír.
Blaðfjöldi
30 blöð ().
Umbrot

Skreytingar

Fyrirsagnir rauðar.

Spássíugreinar og aðrar viðbætur

Árni Magnússon hefur skrifað á saurblað: Þessar Rollants rímur átti [breytt úr á] sr. Jón Torfason á Breiðabólsstað, og eru þær útskornar úr bók er hann átti [breytt úr á]. Hjá mér í láni, hvar á aðrar fleiri rímur, - ég á nú (1721) bókina [síðari viðbót]. - Bókin [AM 614 a-f 4to] er rituð sirka 1656. Er þetta með hendi Halldórs nokkurs Guðmundssonar norðlensks manns, skrifar sr. Jón Torfason mér, og segir þann Halldór sér ókunnugan vera [upprunalega skrifað: Sr Jóns Erlendssonar í Villingaholti yfirstrikað og leiðrétt ofan línu].

Band

Fylgigögn

á fremra saurblaði eru upplýsingar með hendi Árna Magnússonar

Uppruni og ferill

Uppruni

Halldór Guðmundsson skrifaði 1656 (sjá saurblað).

Samkvæmt athugasemd frá Guðbrandi Vigfússyni er höndin Hallgríms Péturssonar, en það er varla rétt, segir Kålund.

Upprunalega hluti af stærra handriti, sem innihélt AM 614 a-f 4to.

Ferill

Árni Magnússon fékk frá sr. Jóni Torfasyni á Breiðabólstað, fyrst að láni en til eignar 1721 (sjá saurblað).

Aðföng

Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við handritinu 30. mars 1983.

Aðrar upplýsingar

Skráningarferill

Tekið eftir Katalog II , bls. 22 (nr. 1580). Kålund gekk frá handritinu til skráningar í október 188?. ÞS skráði 6. september 2001.

Viðgerðarsaga

Gert við í Kaupmannahöfn 1964.

Myndir af handritinu

  • Svart-hvítar ljósmyndir á Det Arnamagnæanske Institut í Kaupmannahöfn.
  • Filma á handritadeild Landsbókasafns Íslands-Háskólabókasafns.

Notaskrá

Höfundur: Björn Karel Þórólfsson
Titill: Rímur fyrir 1600
Höfundur: Jón Þorkelsson
Titill: Íslensk kappakvæði II., Arkiv för nordisk filologi
Umfang: 4
Titill: Katalog over Den Arnamagnæanske Håndskriftsamling
Ritstjóri / Útgefandi: Kålund, Kristian
Höfundur: Jorgensen, Peter A.
Titill: Gripla, Þjóstólfs saga hamramma. The case for forgery
Umfang: 3
Höfundur: Stefán Karlsson
Titill: Halldór Guðmundsson, norðlenzkur maður, Opuscula
Umfang: IV
Lýsigögn
×

Lýsigögn