Skráningarfærsla handrits

AM 613 h 4to

Pontus rímur ; Ísland, 1650-1700

Tungumál textans
íslenska

Innihald

1 (1r-29r)
Pontus rímur
Höfundur

Magnús Jónsson prúði

Upphaf

tru hafde vestu

Niðurlag

madur ef fær þar lijtt ad gad

Skrifaraklausa

Hier enndast rijmur þær Magnus saluge Jonsson kuedid hefur. Þessar tvær rijmur er hier epter eru skrifadar hefur ortt og kuedid, sr Olafur h. Halldors son, ad Stad j Steijngrijms firde

Athugasemd

13 rímur, vantar framan af. Handritið byrjar á síðustu ljóðlínu 27. erindis fyrstu rímu.

Efnisorð
2 (29r-37v)
Pontus rímur
Höfundur

Ólafur Halldórsson

Titill í handriti

Fiortanda Phontus rijma

Upphaf

Ótti drottins upphaf er

Niðurlag

lioda knijtist enda bond

Athugasemd

2 rímur, 14. og 15. ríma.

Sjá einnig skrifaraklausu að ofan.

Efnisorð
3 (37v)
Pontus rímur
Höfundur

Pétur Einarsson

Titill í handriti

Pontus rijmur sem Petur Einarsson ordt hefur | og er þetta su fiortanda, ad auk þeim tveimur firer far|ande er hvorge vilia heima eiga

Upphaf

Þar skal upphaf orða sáð

Niðurlag

og Vijsers dottur sende

Athugasemd

Óheilar, einungis 18 fyrstu erindi 1. rímu Péturs.

Efnisorð

Lýsing á handriti

Blaðefni
Pappír
Blaðfjöldi
37 blöð (213 +/- 1 mm x 162 +/- 1 mm).
Tölusetning blaða

Blaðmerkt 2-38. Síðari tíma blaðsíðumerking 1-74.

Kveraskipan

Átta kver auk tvinns:

  • Kver I: 5 blöð, stakt blað og 2 tvinn.
  • Kver II: 4 blöð, 2 tvinn.
  • Kver III: 4 blöð, 2 tvinn.
  • Kver IV: 4 blöð, stakt bl., tvinn, stakt blað.
  • Kver V: 4 blöð, 2 tvinn.
  • Kver VI: 6 blöð, 3 tvinn.
  • Kver VII: 4 blöð, 2 tvinn.
  • Kver VIII: 4 blöð, 2 tvinn.
  • Tvinn.

Umbrot

  • Leturflötur er 172-190 mm x 130-150 mm.
  • Línufjöldi er 26-38.
  • Griporð sums staðar, pennaflúruð á 14r, 16v, 17r (sjá einnig 18r-v).

Ástand

Fremsta blaðið vantar.

Skrifarar og skrift

Ýmsar hendur.

Óþekktir skrifarar.

Spássíugreinar og aðrar viðbætur

  • Erindum úr rímunum hefur verið bætt við neðst 19r og á spássíur 19r-v af skrifara hluta Péturs Einarssonar (bl. 37v).
  • Leiðréttingar skrifara á nokkrum stöðum (viðbætur á spássíum og strikað yfir orð í texta).
  • Spássíukrot á 8v, 34v.

Band

Band frá c1772-1780 (221 mm x 165 mm x 12 mm). Pappaspjöld og kjölur klædd handunnum pappír. Efnisyfirlit framan á kápu. Á spjaldblöðum sést spegilmynd af prentuðu máli.

Fylgigögn

  • Fastur seðill (106 mm x 70 mm) fremst með hendi Árna Magnússonar með upplýsingum um feril: Pontus rímur defect [óheilar] fengnar af monsieur Birni á Alþingi 1708.
  • Laus seðill frá Kaupmannahöfn með upplýsingum um forvörslu.
  • Laus seðill með arkaskiptingu fyrir viðgerð með hendi Agnete Loth frá 1964.

Uppruni og ferill

Uppruni

Tímasett til síðari helmings 17. aldar (sjá  Grímur M. Helgason 1961:lxxii ). Kålund tímasetti til 17. aldar ( Katalog (II) 1894:22 ).

Ferill

Árni Magnússon fékk frá Birni Þorleifssyni biskupi á Alþingi 1708 (sjá seðil).

Aðföng

Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við handritinu 10. júní 1991.

Aðrar upplýsingar

Skráningarferill

Viðgerðarsaga

Yfirfarið í Kaupmannahöfn í maí 1991.

Viðgert í Kaupmannahöfn í mars 1964.

Matthias Larsen Bloch batt á árunum 1772-1780.

Myndir af handritinu

Svart-hvítar ljósmyndir á Det Arnamagnæanske Institut í Kaupmannahöfn.

Notaskrá

Höfundur: Björn Karel Þórólfsson
Titill: Rímur fyrir 1600
Höfundur: Grímur M. Helgason, Magnús Jónsson, Ólafur Halldórsson, Pétur Einarsson
Titill: Pontus rímur, Rit Rímnafélagsins
Umfang: 10
Höfundur: Guðrún Ása Grímsdóttir, Þórður Jónsson í Hítardal
Titill: Ættartölusafnrit séra Þórðar Jónssonar í Hítardal I-II
Titill: Katalog over Den Arnamagnæanske Håndskriftsamling
Ritstjóri / Útgefandi: Kålund, Kristian
Lýsigögn
×

Lýsigögn