„Hier skrifast rymur aff þeim vyd|fræga Pertioz kvednar aff Gudmundi H. | And[res]syni“
„Ollumm sie þeim os[ka]d godz ...“
„... æffe hæverkst gaman“
6 rímur.
„Epter fylgia rymur af frægdar kappanumm | Bellerofontiz er reyd hestinumm Pegasuz wmm | huörn talad er j fyrer farandi rijmumm “
„Skialad dreg eg Fialarz fley ...“
„... ant og vant er læsa“
Um höfund sjá Jakob Benediktsson 1949 .
5 rímur, 6. var ekki skrifuð hér.
Neðan við lok rímnanna (21r) stendur: Vantar hier eina vera eiga sex.
„Hier byriast Ans rymur kued|nar af Sugurdi (!) blinda“
„Sueirn er nefndur j sögumm Án ...“
„... fanst þar einginn betri“
Einungis upphaf.
Miðað við útgáfuna í Íslenzkar miðaldarímur (II) 1973 , hefjast rímurnar hér á 24. vísu 1. rímu og enda á 40. vísu sömu rímu.
Árni Magnússon segir rímurnar ónýtar og hefur líklega fargað þeim (sjá seðil).
Bl. 22 autt, var áður límt yfir 21v.
Á innskotsblaði er stórt skjaldarmerki Amsterdam með fangamerki „MI“ fyrir neðan.
Síðari tíma blaðsíðumerking með blýanti og penna, 1-41, að mestu einungis oddasíður.
Þrjú kver:
Bl. 1r skítugt.
Ein hönd að mestu, 10 1/2 lína efst á 11v með annarri hendi, fljótaskrift.
Óþekktur skrifari, fljótaskrift.
Upphafsstafur hverrar rímu skreyttur.
Fyrsti stafur á blaðsíðu oft dreginn stærra.
Band frá c1772-1780 (217 mm x 170 mm x 8 mm). Pappaspjöld og kjölur klædd handunnum pappír. Efnisyfirlit framan á kápu. Á spjaldblöðum sést spegilmynd af prentuðu máli.
Fastur seðill (198 mm x 155 mm) fremst með hendi Árna Magnússonar með upplýsingum um feril og innihald: „Frá monsieur Guðmundi Þorleifssyni: Perseus rímur 6, Bellerofontis rímur 5, vantar þá 6tu. Hér aftan við voru Áns rímur Sigurðar blinda, 8 voru ónýtar. Grímalds rímur síra Jóns Arasonar 3. Nokkrar vísur síra Jóns Arasonar.“
Tímasett til loka 17. aldar (sjá Jakob Benediktsson 1949:xxiv-xxv ). Kålund tímasetti til 17. aldar ( Katalog (II) 1894:20).
Var áður hluti af stærra handriti sem í voru Grímalds rímur séra Jóns Arasonar og nokkrar vísur sama, nú í AM 611 e 4to.
Árni Magnússon fékk frá Guðmundi Þorleifssyni í Brokey, líklega fyrir 1703 (sjá seðil).
Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við handritinu 18. mars 1983.
Viðgert í Kaupmannahöfn 1964.
Matthias Larsen Bloch batt á árunum 1772-1780.