Handritið hefur verið blaðsíðumerkt síðar en þó oftast aðeins á oddasíður (1-32).
Tvö kver.
Óþekktur skrifari, léttiskrift.
Band frá 1772-1780 (172 mm x 112 mm x 4 mm). Pappaspjöld klædd handgerðum pappír. Safnmark og titill skrifað framan á kápu. Blár safnmarksmiði á kili. Spjaldblöð úr prentaðri bók.
Handritið er skrifað á Íslandi. Það er tímasett til síðari hluta 17. aldar í Katalog II , bls. 19. Það hefur áður verið hluti af sama handriti og AM 612 e 4to.
Í AM 477 fol. eru að auki nefndar undir númerinu AM 612 4to Rímur af Illuga kerlingarfífli, ortar af Þormóði Eiríkssyni í Gvendareyjum, sem nú vantar (tvö eintök, annað með fljótaskrift en hitt með settaskriftarhendi Jóns Sigurðssonar).
Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við handritinu 11. mars 1983.
Gert við í Kaupmannahöfn 1964.