Skráningarfærsla handrits

AM 612 e 4to

Illuga rímur eldhússgoða ; Ísland, 1673

Tungumál textans
íslenska

Innihald

(1r-17v)
Illuga rímur eldhússgoða
Athugasemd

Sex rímur.

Óheilar. Byrja í 12. vísu 1. rímu. Vantar úr 2. rímu.

Efnisorð

Lýsing á handriti

Blaðefni
Pappír
Blaðfjöldi
17 blöð ().
Umbrot

Ástand

  • Blöðin eru slitin og fremsta blaðið illa farið.
  • Blöð vantar framan af og eitt blað á eftir bl. 6.

Skrifarar og skrift

Ein hönd.

Skreytingar

Spássíugreinar og aðrar viðbætur

Þrjár öftustu blaðsíðurnar hafa upprunalega verið auðar en á þeim er nú margvíslegt krot.

Band

Fylgigögn

Fastur seðill (162 mm x 103 mm) fremst með hendi Árna Magnússonar: Rímur af Illuga eldhússgoða. Komnar frá Oddi Gíslasyni undir Eyjafjöllum.

Uppruni og ferill

Uppruni

Handritið er tímasett 1673, en því hefur verið bætt við á eftir yfirskrift 5. rímu á bl. 12v.

Í AM 477 fol. eru að auki nefndar undir númerinu AM 612 4to Rímur af Illuga kerlingarfífli, ortar af Þormóði Eiríkssyni í Gvendareyjum, sem nú vantar (tvö eintök, annað með fljótaskrift en hitt með settafskriftarhendi Jóns Sigurðssonar).

Ferill

Árni Magnússon fékk frá Oddi Gíslasyni undir Eyjafjöllum (sjá seðil).

Aðföng

Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við handritinu 26. nóvember 1993.

Aðrar upplýsingar

Skráningarferill

Tekið eftir Katalog II , bls. 19 (nr. 1567). Kålund gekk frá handritinu til skráningar í október 188?. ÞS skráði 4. september 2001.

Myndir af handritinu

  • Svart-hvítar ljósmyndir á Det Arnamagnæanske Institut í Kaupmannahöfn.
  • Negatíf filma á Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi frá 1990. Ljósmyndari Jóhanna Ólafsdóttir. Askja 338.
  • Filma á handritadeild Landsbókasafns Íslands-Háskólabókasafns.

Notaskrá

Höfundur: Björn Karel Þórólfsson
Titill: Rímur fyrir 1600
Titill: Katalog over Den Arnamagnæanske Håndskriftsamling
Ritstjóri / Útgefandi: Kålund, Kristian
Höfundur: Valgerður Kr. Brynjólfsdóttir
Titill: Meyjar og völd : rímurnar af Mábil sterku
Lýsigögn
×

Lýsigögn