Sex rímur. Óheilar. Byrja í 12. vísu 1. rímu. Vantar úr 2. rímu.
Ein hönd.
Þrjár öftustu blaðsíðurnar hafa upprunalega verið auðar en á þeim er nú margvíslegt krot.
Fastur seðill (162 mm x 103 mm) fremst með hendi Árna Magnússonar: „Rímur af Illuga eldhússgoða. Komnar frá Oddi Gíslasyni undir Eyjafjöllum.“
Handritið er tímasett 1673, en því hefur verið bætt við á eftir yfirskrift 5. rímu á bl. 12v.
Í AM 477 fol. eru að auki nefndar undir númerinu AM 612 4to Rímur af Illuga kerlingarfífli, ortar af Þormóði Eiríkssyni í Gvendareyjum, sem nú vantar (tvö eintök, annað með fljótaskrift en hitt með settafskriftarhendi Jóns Sigurðssonar).
Árni Magnússon fékk frá Oddi Gíslasyni undir Eyjafjöllum (sjá seðil).
Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við handritinu 26. nóvember 1993.
Tekið eftir Katalog II , bls. 19 (nr. 1567). Kålund gekk frá handritinu til skráningar í október 188?. ÞS skráði 4. september 2001.