„Illuga Rymur a Illuga | elld Huz goda“
Sex rímur. Bl. 12v autt.
Viðbætur frá skrifara aftast.
Fastur seðill (209 mm x 164 mm)með hendi Árna Magnússonar: „Rïmur af Jlluga Elldhussgoda. uppskrifadar af Asbirne Jonssyne ä Lambafelle epter systur sinne og sier sialfum epter þvi sem þau mundu bæde. 1706.“
Með hendi Ásbjarnar Jónssonar á Lambafelli, en handritið er tímasett 1706 á föstum seðli Árna Magnússonar fremst.
Í AM 477 fol. eru að auki nefndar undir númerinu AM 612 4to Rímur af Illuga kerlingarfífli, ortar af Þormóði Eiríkssyni í Gvendareyjum, sem nú vantar (tvö eintök, annað með fljótaskrift en hitt með settafskriftarhendi Jóns Sigurðssonar).
Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við handritinu 29. janúar 1993.
Tekið eftir Katalog II , bls. 18 (nr. 1566). Kålund gekk frá handritinu til skráningar í október 188?. ÞS skráði 4. september 2001.
Viðgert og hreinsað í Kaupmannahöfn í desember 1992.