„Hier hefíaſt rymur af Olafe | konge Trygguaſyne“
Átta rímur. Bl. 113 og 120 eru óskrifuð til að merkja eyður í texta.
„Hier Byriaſt Herburts þattur“
Árni Magnússon leiðréttir þáttur í rímur. Fjórar rímur.
„Hier byriaſt Andra rymur“
Fyrirsögnin er á bls. 248. 13 rímur. Bl. 157v er autt.
Handritið er blaðsíðumerkt.
Blöð eru víða slitin á spássíum.
Ein hönd, Jón Gissurarson (en bl. 128 og 137 með hendi frá um 1700).
Grátt band frá c1770-1780. Á kápunni stendur: "Numero 610 c. Jarlmanns rímur. Hrómundar rímur, 71-98. Ólafs Tryggvasonar rímur, 98-121. Hemings rímur, 121-151. Konráðs rímur, 151-190. Herburts rímur, 190-201. Reinalds rímur, 202-248. Andra rímur 249-343."
Tveir seðlar með hendi Árna Magnússonar eru í AM 610 d 4to.
Með hendi Jóns Gissurarsonar og tímasett til 17. aldar í Katalog II , bls. 14, en virkt skriftartímabil Jóns var c1610-1648. Handritið var áður hluti af sama handriti og AM 610 b, d, e-f 4to.
Árni Magnússon tók handritið úr bók sem hann fékk frá Vigfúsi Hannessyni (sjá AM 610 b 4to).
Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við handritinu 14. október 1994.
Tekið eftir Katalog II , bls. 15 (nr. 1553). Kålund gekk frá handritinu til skráningar í október 188?. ÞS skráði 31. ágúst 2001. BS lagfærði 25. júní 2020.
Viðgert í Kaupmannahöfn í september og október 1994. Nákvæm lýsing á viðgerð og ljósmyndun fylgir.