„Hier byriar Rymur af þeim Gamla | forfødur Eigle Skallagrijmſſyne huoriar | Jön Gudmundſſon ortt hefur, þä dätumm | skrifadeſt 1643“
„Mig hefur beded af mærdar hleim ...“
„... mynumm verda äa kvædumm“
„finis EH.“
40 rímur.
Blaðsíðumerking með blýanti og svörtu bleki í efri ytra horni rektósíðna 1-190, síðari tíma viðbót.
Tólf kver:
Óþekktur skrifari, með upphafsstafi „EH“ skv. skrifaraklausu, skrifar með fljótaskrift, en upphaf 38. rímu (bl. 86v) er skrifað með kansellískrift. Stefán Karlson 1964, bls. 7 telur að skrifari hafi verið Þórður Jónsson að Strandseljum.
Fyrsti upphafstafur er blekdreginn skrautstafur (ca 7 línur). Aðrir upphafstafir eru minni (2-3 línur) en einnig blekdregnir skrautstafir.
Skreyting við eða umhverfis griporð.
Fyrirsagnir og fyrsta lína eru skrifuð í kansellískrift.
Band frá árunum 1772-1780 ( mm x mm x mm). Pappaspjöld og kjölur klædd handunnum pappír. Titlar og safnmark skrifað framan á kápu. Titill hefur verið leiðréttur frá „Egils saga Skallagrims sonar“ í „Egils rímur Skallagrims sonar“. Leifar af límmiða á kili.
Kjölur er ekki góðu ástandi.Fastur seðill (111 mm x 146 mm) fremst með hendi Árna Magnússonar: „Egils rímur Skallagrímssonar ortar af Jóni Guðmundssyni í Russeyjum [Rauðseyjum]. Úr bók er ég fékk 1709 frá Gísla Jónssyni í Mávahlíð. Þá bók hafði átt Magnús Björnsson á Bessastöðum í Steingrímsfirði 1702, [1]703, [1]704, 1705 í maí átti Gísli Jónsson bókina.“
Laus miði, með nútíma hönd hefur skrifað: „Egils rímur, AM 610 a 4to 1sta Ríma: Sæbjörg (f. Sal.) Haralldur lurpa Hundþiöf kongur Hlaupið yfir Auðbjörn konung,
Handritið er skrifað á Íslandi og tímasett til 17. aldar í Katalog II, bls. 14. Það hefur upprunalega verið hluti af stærri bók (sjá seðil).
Árni Magnússon fékk handritið frá Gísla Jónssyni í Mávahlíð 1709. Það hafði átt Magnús Björnsson á Bassastöðum í Steingrímsfirði 1702, en í maí 1705 var það komið í eigu Gísla (sjá fastan seðil fremst).
Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við handritinu 17. desember 1982.
Athugað fyrir myndatöku júní 2010.
Myndað í júní 2013.
Jens Jacob Webber batt á árunum 1772-1780.
Myndað fyrir handritavef í júní 2013.