Strikað yfir texta á efri helmingi bl. 1r.
Árni Magnússon getur Gísla Jónssonar sem höfundar í athugasemd.
Band frá því í mars 1977.
neðst á 1. blaði stendur með hendi Árna Magnússonar: „Álaflekks rímur, 12, Gísla Jónssonar.“
Handritið er tímasett til síðari helmings 17. aldar í Katalog II , bls. 13.
Í AM 477 fol. eru að auki nefndar undir númerinu AM 609 4to Rímur af Appollóníusi Björns Jónssonar á Skarðsá, Blómsturvallarímur (eða af Ákasonum) Jóns Eggertssonar og Callinus rímur, sem ekki eru þar lengur.
Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við handritinu 13. júlí 1977.
Tekið eftir Katalog II , bls. 13 (nr. 1548). Kålund gekk frá handritinu til skráningar í október 188?. ÞS skráði 31. ágúst 2001.
Viðgert og bundið af Birgitte Dall í mars 1977. Eldra band fylgir.