Skráningarfærsla handrits

AM 606 g 4to

Ólafs rímur Tryggvasonar ; Ísland, 1601-1700

Tungumál textans
íslenska

Innihald

(1r-11r)
Ólafs rímur Tryggvasonar
Titill í handriti

Rymur aff Olafe konge Trygguasyne

Athugasemd

Átta rímur.

Bl. 11v autt.

Efnisorð

Lýsing á handriti

Blaðefni
Pappír með vatnsmerkjum.
  • Aðalmerki: Tvöfaldur kross með kórónu efst og sporjöskulegt form um krossinn (bl. 1, 3, 6, 8, 9, 12 )

Vatnsmerki á auka tvinni er stórt skjaldarmerki Amsterdam. Sama vatnsmerki finnst á innri saurblöðum AM 410 4to.

Blaðfjöldi
12 blöð (203 mm x 156 mm). Bl. 11v er autt.
Tölusetning blaða

Handritið er blaðsíðumerkt 1-21, síðari tíma viðbót.

Kveraskipan

Tvö kver:

  • Kver I: 1-8 (1+8, 2+7, 3+6, 4+5), 4 tvinn.
  • Kver II: 9-12 (9+12, 10+11), 2 tvinn.

Umbrot

  • Eindálka.
  • Leturflötur er 170 mm x 130 mm.
  • Línufljöldi er 26-30.
  • Tvö skástrik marka enda rímna-línu.
  • Leturflötur er afmarkaður með þurroddi við ytri spássíu.
  • Griporð á bl. 8v, pennaflúruð.
  • Síðustu orð á síðu hanga á stöku stað undir leturfleti bl. 9v-10v.

Ástand

  • Blettir við jaðar.
  • Bleksmitun.

Skrifarar og skrift

Ein hönd, óþekktur skrifari, fljótaskrift.

Skreytingar

Upphafstafir blekdregnir skrautstafir (1-2 línur).

Fyrirsagnir og fyrsta lína rituð í kansellískrift.

Skreyting við eða umhverfis griporð.

Lítill bókarhnútur á bl. 11r.

Jaðar hefur verið litaður dökk blár.

Spássíugreinar og aðrar viðbætur

Spássíugrein frá 18. öld á bl. 1r þar sem vísað er í Specimen Runicum Magnúsar Ólafssonar um hver höfundur rímnanna sé, Sigurdus Cæcus.

Band

Band frá ca. 1771-1780, pappaspjöld og kjölur klæddur handunnum pappír. Titill og safnmark skrifað framan á kápu með svörtu bleki. Tveir límmiðar á kili með safnmarki og hlaupandi tölu.

Fylgigögn

Eitt blað (203 mm x 156 mm) fremst með hendi Árna Magnússonar: Ólafs rímur Tryggvasonar Sigurðar blinda. Fengnar 1712 í octobri hjá monsieur Þormóði Torfasyni, og voru þá innbundnar framan við annála. Tvenna, gamla og Björns á Skarðsá. Eru (sem mér sýnist) með hendi eins skrifara herra Þorláks biskups á Hólum, og var bókin öll með sömu hendi rituð.

Uppruni og ferill

Uppruni

Skrifað á Íslandi með hendi skrifara Þorláks Þórðarsonar biskups (sjá seðil), en handritið er tímasett til 17. aldar í  Katalog II, bls. 12.

Var áður bundið framan við tvo gamla annála og annál Björns Jónssonar á Skarðsá (sjá seðil).

Í AM 477 fol., eru að auki nefndar undir númerinu AM 606 4to Rímur af Andra jarli, Hjálmþérs rímur og Rímur af Ormari Framarssyni, sem nú vantar en hafa að því er virðist einnig verið með hendi Jóns Sigurðssonar eldri.

Ferill

Árni Magnússon fékk frá Þormóði Torfasyni í október 1712.

Aðföng

Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við handritinu 23. janúar 1984.

Aðrar upplýsingar

Skráningarferill
  • MJG uppfærði með gögnum frá BS, 27. febrúar 2024.
  • ÞS skráði 29. ágúst 2001.
  • Tekið eftir Katalog II, bls. 12 (nr. 1542). Kålund gekk frá handritinu til skráningar í október 188?.
Myndir af handritinu

  • Svart-hvítar ljósmyndir á Det Arnamagnæanske Institut í Kaupmannahöfn.
  • Filma á handritadeild Landsbókasafns Íslands-Háskólabókasafns.

Notaskrá

Titill: Hemings þáttr Áslákssonar,
Ritstjóri / Útgefandi: Fellows-Jensen, Gillian
Umfang: 3
Titill: Katalog over Den Arnamagnæanske Håndskriftsamling
Ritstjóri / Útgefandi: Kålund, Kristian
Lýsigögn
×

Lýsigögn