„Filippus rímur. viii.“
„Æfintýrin forn og fróð …“
„… lokið er fræði öllu.“
Riddararímur, 1881.
Fyrirsögn á efri spássíu.
Átta rímur.
„Áns rímur átta með (?)“
„Fræðið hefi eg fólki veitt …“
„… fari þeir með sem slíkar.“
Áns rímur bogsveigis, 1973.
Fyrirsögn á efri spássíu.
Átta rímur.
„Hemings rímur vi.“
„Fyrr í heimi skáldin skýr …“
„… að Óðinn missti.“
Hemingsrímur, 1928.
Fyrirsögn á efri spássíu.
Sex rímur.
„Konráðs rímur viii“
„En þó að Rögnis rósar flóð …“
„… finnst í harma hljóði.“
Riddararímur, 1881.
Fyrirsögn á efri spássíu.
Átta rímur.
„Herburts rímur iiii“
„Margra verður ljóða loft …“
„… hafi þeir hróður sem vilja.“
Riddararímur, 1881.
Fyrirsögn á efri spássíu.
Fjórar rímur.
„Efna vilda eg orða þings …“
„… Lúpus skeði og lafðungs niður …“
Fyrirsögn á efri spássíu.
Enda í 16. vísu annarrar rímu. Eyða aftan við. Sjá niðurlag í AM 604 b 4to.
Handritið hefur verið blaðsíðumerkt síðar með bleki, 1-82.
Blöðin voru öll stök en hafa nú verið límd á móttök í nýju bandi.
Óþekktur skrifari, árléttiskrift.
Fyrsti upphafsstafur rauður og grænn (bl. 1r).
Pennaflúraðir upphafsstafir víða, sjá t.d. bl. 4r, 5r, 6v, 9v, 11r, 13v, 20r, 26v, 27v, 32r, 33r, 35v, 38r, 40v og víðar.
Ýmiskonar skrautflúr víða, blóm og laufteinungar, oft á neðri spássíu (t.d. 6r, 7v, 13r, 19r, 20r-v, 21r-v, 29v, 30r-v, 31r-v, 34v).
Teikning af dreka á neðri spássíu bl. 19v og 29r og af hönd á neðri spássíu bl. 26r.
Band frá desember 1977 (217 null x 175 null x 33 null). Pappaspjöld klædd fínofnum líndúk. Leður á kili og hornum. Blöðin eru límd á móttök. Saurblöð tilheyra bandi.
Gamalt band fylgir.
Bókina sem handritið tilheyrði fékk Árni Magnússon senda til eignar á Alþingi 1707, frá Pétri Bjarnasyni á Staðarhóli (sbr. seðil). Jón Ólafsson úr Grunnavík lýsir bókinni sem óinnbundinni og þverhandarþykkri í handritaskrá sinni í AM 477 fol. Eftir það hefur henni verið skipt upp í átta pappahefti.
Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við handritinu 26. apríl 1978.
Bundið af Birgitte Dall í desember 1977. Eldra band fylgir.
Viðgert af Birgitte Dall í febrúar 1965.