Skráningarfærsla handrits

PDF
PDF

AM 604 a 4to

Staðarhólsbók ; Ísland, 1540-1560

Tungumál textans
íslenska

Innihald

1 (1r-9v (s. 1-18))
Filipórímur
Titill í handriti

Filippus rímur. viii.

Upphaf

Æfintýrin forn og fróð …

Niðurlag

… lokið er fræði öllu.

Notaskrá
Athugasemd

Fyrirsögn á efri spássíu.

Átta rímur.

Efnisorð
2 (9v-20r (s. 18-39))
Áns rímur bogsveigis
Titill í handriti

Áns rímur átta með (?)

Upphaf

Fræðið hefi eg fólki veitt …

Niðurlag

… fari þeir með sem slíkar.

Notaskrá
Athugasemd

Fyrirsögn á efri spássíu.

Átta rímur.

Efnisorð
3 (20r-27v (s. 39-54))
Hemingsrímur
Titill í handriti

Hemings rímur vi.

Upphaf

Fyrr í heimi skáldin skýr …

Niðurlag

… að Óðinn missti.

Notaskrá

Hemingsrímur, 1928.

Athugasemd

Fyrirsögn á efri spássíu.

Sex rímur.

Efnisorð
4 (27v-37v (s. 54-74))
Konráðsrímur
Titill í handriti

Konráðs rímur viii

Upphaf

En þó að Rögnis rósar flóð …

Niðurlag

… finnst í harma hljóði.

Notaskrá

Riddararímur, 1881.

Athugasemd

Fyrirsögn á efri spássíu.

Átta rímur.

Efnisorð
5 (38r-40v (s. 75-80))
Herburtsrímur
Titill í handriti

Herburts rímur iiii

Upphaf

Margra verður ljóða loft …

Niðurlag

… hafi þeir hróður sem vilja.

Notaskrá
Athugasemd

Fyrirsögn á efri spássíu.

Fjórar rímur.

Efnisorð
6 (40v-41v (s. 80-82))
Reinaldsrímur (gömlu)
Upphaf

Efna vilda eg orða þings …

Niðurlag

… Lúpus skeði og lafðungs niður …

Athugasemd

Fyrirsögn á efri spássíu.

Enda í 16. vísu annarrar rímu. Eyða aftan við. Sjá niðurlag í AM 604 b 4to.

Efnisorð

Lýsing á handriti

Blaðefni
Skinn.
Blaðfjöldi
i + 41 + i bl. (203-205 mm x 146-148 mm). Nokkur blöð eru óregluleg í lögun (bl. 7r-8v, 12, 14, 23, 24, 31-32, 37).
Tölusetning blaða

Handritið hefur verið blaðsíðumerkt síðar með bleki, 1-82.

Kveraskipan

Blöðin voru öll stök en hafa nú verið límd á móttök í nýju bandi.

Umbrot

  • Eindálka.
  • Leturflötur er ca 160-165 mm x 113-117 mm.
  • Línufjöldi er 32-33.
  • Stafir eru dregnir út úr leturfleti á hverri síðu (sjá t.d. bl. 20r-v).

Ástand

  • Mörg blaðanna eru með götum og rifum, flestum upprunalegum og skemma því ekki texta (t.d. bl. 37).
  • Saumgöt eru á innri spássíu margra blaða, einkum framarlega í handritinu.
  • Sum blöðin eru skítug og dökk, t.d. bl. 1v, 2r, 10r, 18r, 25v, 34r, 41r-v.

Skrifarar og skrift

Óþekktur skrifari, árléttiskrift.

Skreytingar

Fyrsti upphafsstafur rauður og grænn (bl. 1r).

Pennaflúraðir upphafsstafir víða, sjá t.d. bl. 4r, 5r, 6v, 9v, 11r, 13v, 20r, 26v, 27v, 32r, 33r, 35v, 38r, 40v og víðar.

Ýmiskonar skrautflúr víða, blóm og laufteinungar, oft á neðri spássíu (t.d. 6r, 7v, 13r, 19r, 20r-v, 21r-v, 29v, 30r-v, 31r-v, 34v).

Teikning af dreka á neðri spássíu bl. 19v og 29r og af hönd á neðri spássíu bl. 26r.

Spássíugreinar og aðrar viðbætur

Band

Band frá desember 1977 (217 null x 175 null x 33 null). Pappaspjöld klædd fínofnum líndúk. Leður á kili og hornum. Blöðin eru límd á móttök. Saurblöð tilheyra bandi.

Gamalt band fylgir.

Fylgigögn

  • Fastur seðill (73 mm x 139 mm) fremst með efnisyfirliti handritsins á rektóhlið með yngri hendi.
  • Þrír fastir seðlar fremst með hendi Árna Magnússonar:
    • Fastur seðill (57 mm x 130 mm með upplýsingum um aðföng bókarinnar á rektóhlið Rímnabók frá Pétri Bjarnasyni á Staðarhóli, mér send til eignar 1707 á alþing.
    • Fastur seðill (166 mm x 106 mm, tvinn) með skrá yfir efni handritsins með athugasemdum við þær rímur sem Árni hefur látið skrifa upp (1r) Filipó rímur. 8. Áns rímur. 8. + Hemings rímur + Konráðs rímur: Herburts rímur. + Reinalds rímur, vantar mikið + Andra rímur eru uppskrifaðar. Landrés rímur. + Hjálmþers rímur eru skrifaðar + Friðþjófs rímur eru skrifaðar + Haralds rímur Hringsbana eru skrifaðar + Gríms og Hjálmars rímur eru skrifaðar + Hálfdanar rímur Brönufóstra eru skrifaðar. (1v) Bláus og Viktors rímur, Bærings rímur. Dínus rímur. Rímur af Hring og Tryggva. Sigurðar þögla rímur. + Ormars rímur eru skrifaðar, Þjófa rímur (af Illuga verra, versta), Vilmundar rímur defect + Jarlmanns rímur, defect. + Skáld-Helga rímur eru uppskrifaðar. (2r) Færeyinga rímur, vantar í og framan við Sörla rímur, vantar aftan við + aftan af Óðins rímum (Þrymlum). + Lokrur (um Loka Laufeyjarson). + Völsungs rímur hins óborna. Hectors rímur vantar framan við. Úlfhams rímur. [Undirstrikað:] Dámusta rímur. Úlfhams rímur. Klerka rímur. Sálusar og Nikanors rímur. (2v er auð).
    • Seðill (165 mm x 105 mm) um annað rímnabrot sem Jón Ólafsson nefnir einnig í skrá sinni (AM 477 fol.), aftan við upptalningu efnisins í AM 604 a-h 4to. Á brotinu, sem nú er glatað, voru hlutar úr Rímum af Reinald og Rósu, Hemingsrímum, Rímum af Konráði keisarasyni, Herburtsrímum, Þrymlum og Lokrum og framan af Völsungsrímum. Árni Magnússon fékk þetta brot frá Páli Vídalín lögmanni á Alþingi árið 1705 en Páll hefur líklega fengið frá tengdaföður sínum, Magnúsi Jónssyni í Vigur, sem dó 1702 (sbr. Jón Helgason 1975:241).

Uppruni og ferill

Uppruni

  • Handritið var skrifað á Íslandi. Það er tímasett til ca 1550 (sbr. ONPRegistre , bls. 457), en til fyrri hluta 16. aldar í  Katalog II , bls. 5.
  • Handritið var áður hluti af stærri bók sem innihélt einnig AM 604 b-h 4to.
  • Kålund ber skriftina saman við þá sem er í AM 713 4to ( Katalog II 1894:5 ).

Ferill

Bókina sem handritið tilheyrði fékk Árni Magnússon senda til eignar á Alþingi 1707, frá Pétri Bjarnasyni á Staðarhóli (sbr. seðil). Jón Ólafsson úr Grunnavík lýsir bókinni sem óinnbundinni og þverhandarþykkri í handritaskrá sinni í AM 477 fol. Eftir það hefur henni verið skipt upp í átta pappahefti.

Aðföng

Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við handritinu 26. apríl 1978.

Aðrar upplýsingar

Skráningarferill

ÞS skráði samkvæmt reglum TEI P512.-31. ágúst 2009 og síðar.

DKÞ færði inn grunnupplýsingar 28. ágúst 2003.

Kålund gekk frá handritinu til skráningar 1. febrúar 1888(sjá Katalog I 1889:761 (nr. 1503) .

GV sló inn texta af seðlum Árna Magnússonar undir umsjón ÞS og með hliðsjón af gögnum frá MJ.

Viðgerðarsaga

Bundið af Birgitte Dall í desember 1977. Eldra band fylgir.

Viðgert af Birgitte Dall í febrúar 1965.

Myndir af handritinu

  • Svart-hvítar ljósmyndir á Det Arnamagnæanske Institut í Kaupmannahöfn.
  • Ljósprent í  Corpus Codicum Islandicorum Medii Aevi XI (1938).

Notaskrá

Titill: , Úlfhams saga
Ritstjóri / Útgefandi: Aðalheiður Guðmundsdóttir
Umfang: 53
Höfundur: Kjeldsen, Alex Speed
Titill: , Filologiske studier i kongesagahåndskriftet Morkinskinna
Umfang: Supplementum 8
Höfundur: Bjarni Einarsson
Titill: Munnmælasögur 17. aldar, Íslenzk rit síðari alda
Umfang: 6
Höfundur: Björn Karel Þórólfsson
Titill: Rímur fyrir 1600
Höfundur: Björn Karel Þórólfsson
Titill: Nokkur orð um íslenzkt skrifletur, Árbók. Landsbókasafn Íslands
Umfang: 5-6
Titill: , Bevers saga
Ritstjóri / Útgefandi: Sanders, Christopher
Umfang: 51
Höfundur: Seip, Didrik Arup
Titill: Nordisk kultur, Palæografi. B. Norge og Island
Umfang: 28:B
Höfundur: Finnur Jónsson
Titill: Oldislandske ordsprog og talemåder, Arkiv för nordisk filologi
Umfang: 30
Titill: Hemings þáttr Áslákssonar,
Ritstjóri / Útgefandi: Fellows-Jensen, Gillian
Umfang: 3
Höfundur: Guðvarður Már Gunnlaugsson
Titill: Sýnisbók íslenskrar skriftar
Höfundur: Guðbjörg Kristjánsdóttir
Titill: Lýsingar í íslenskum handritum á 15. öld, Gripla
Umfang: 27
Höfundur: Haukur Þorgeirsson, Jóhanna Katrín Friðriksdóttir
Titill: Gripla, Hrólfs rímur Gautrekssonar
Umfang: 26
Höfundur: Jón Helgason
Titill: , Noter til þrymlur
Umfang: s. 241-249
Höfundur: Jón Helgason
Titill: Skírnir, Nokkur íslensk handrit frá 16. öld
Umfang: 106
Höfundur: Jón Þorkelsson
Titill: Arkiv för nordisk filologi, Íslenzk kappakvæði I
Umfang: 3
Höfundur: Jón Þorkelsson
Titill: Íslensk kappakvæði II., Arkiv för nordisk filologi
Umfang: 4
Titill: , Gamlar vísur
Ritstjóri / Útgefandi: Jón Þorkelsson
Umfang: 1
Titill: Katalog over Den Arnamagnæanske Håndskriftsamling
Ritstjóri / Útgefandi: Kålund, Kristian
Höfundur: Driscoll, Matthew James
Titill: Postcards from the edge: an overview of marginalia in Icelandic manuscripts, Variants
Umfang: s. 21-36
Höfundur: Chesnutt, Michael
Titill: Egils saga Skallagrímssonar. Bind III. C- redaktionen,
Umfang: 21
Titill: Ordbog over det norrøne prosasprog: Registre
Ritstjóri / Útgefandi: Den arnamagnæanske kommision
Höfundur: Astås, Reidar
Titill: Ordtak i Stjórn I,
Umfang: s. 126-133
Titill: , Íslenzkar miðaldarímur II: Áns rímur bogsveigis
Ritstjóri / Útgefandi: Ólafur Halldórsson
Umfang: IV
Titill: Rit Handritastofnunar Íslands, Laurentius saga biskups
Ritstjóri / Útgefandi: Árni Björnsson
Umfang: III
Titill: Riddara-rímur, STUAGNL
Ritstjóri / Útgefandi: Theodor Wisén
Umfang: IV
Höfundur: Stefán Karlsson
Titill: Ritun Reykjafjarðarbókar. Excursus, bókagerð bænda,
Umfang: s. 120-140
Höfundur: Stefán Karlsson
Titill: Bókagerð Ara lögmanns Jónssonar, Gripla
Umfang: 19
Höfundur: Sverrir Tómasson
Titill: Lítið er lunga, Glerharðar hugvekjur
Umfang: s. 85-86
Titill: Riddararímur,
Ritstjóri / Útgefandi: Wisén, Theodor
Umfang: 4
Höfundur: Valgerður Kr. Brynjólfsdóttir
Titill: Meyjar og völd : rímurnar af Mábil sterku
Höfundur: Yelena Sesselja Helgadóttir (Yershova)
Titill: Són. Tímarit um óðfræði, Íslenskar lausavísur og bragfræðilegar breytingar á 14.-16. öld
Umfang: 3
Höfundur: Yelena Sesselja Helgadóttir (Yershova)
Titill: Handritsmynd í hremmingum, Heilagar arkir : færðar Jóhönnu Ólafsdóttur sextugri, 13. janúar 2009
Umfang: s. 50-51
Höfundur: Ólafur Halldórsson
Titill: Kulturhistorisk leksikon for nordisk middelalder, Rímur
Umfang: XIV
Titill: Áns rímur bogsveigis, Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi : Rit
Ritstjóri / Útgefandi: Ólafur Halldórsson
Umfang: s. 197 p.
Höfundur: Ólafur Halldórsson
Titill: Grænland í miðaldaritum
Höfundur: Ólafur Halldórsson
Titill: Athugasemdir við bók Más Jónssonar um Árna Magnússon, Gripla
Umfang: 11
Höfundur: Veturliði Óskarsson, Þórdís Edda Jóhannesdóttir
Titill: Scripta Islandica, The manuscripts of Jómsvíkinga saga : a survey
Umfang: 65
Höfundur: Þórdís Edda Jóhannesdóttir
Titill: Opuscula XVII, Marginalia in AM 510 4to
Umfang: s. 209-222
Lýsigögn
×
  • Land
  • Ísland
  • Staður
  • Reykjavík
  • Stofnun
  • Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum
  • Vörsludeild
  • Handritasvið
  • Safn
  • Safn Árna Magnússonar
  • Safnmark
  • AM 604 a 4to
  • Gælunafn
  • Staðarhólsbók
  • Efnisorð
  • Rímur
  • XML
  • Opna XML færslu  
  • PDF í einni heild
  • UpplýsingarUpplýsingar
  • Athugasemdir
  • Gera athugasemdir við handrit  

Lýsigögn