„Saga af Finnu forvitru“
„Maður er nefndur Þrándur, hann var lögmaður …“
„… varð lögmaður eftir Þránd og þau áttu börn og burur.“
Sagan er prentuð eftir þessu handriti í Íslenzkum þjóðsögum II, s. 383-386.
Blaðmerkt 1-4 með rauðu bleki, líklega af Kålund.
Eitt kver (bl. 1–4, 2 tvinn).
Eindálka.
Leturflötur er ca 180 mm x 150-155 mm.
Línufjöldi ca 23.
Strikað undir orð og setningar með blýanti.
Blekklessa yfir staf í fjórðu línu að neðan á bl. 1r.
Þórður Magnússon, fljótaskrift.
Neðst með hendi Árna Magnússonar: Þórður Magnússon skrifaði þetta í Kaupmannahöfn 1726.
Band frá árunum 1772-1780 (213 mm x 166 mm x 4 mm). Pappaspjöld og kjölur klædd handunnum pappír. Titill og safnmark framan á kápu. Blár safnmarksmiði á kili. Á spjaldblöðum sést spegilmynd af prentuðu máli.
Handritið er skrifað í Kaupmannahöfn árið 1726.
Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við handritinu 23. janúar 1984.
Svart-hvítar ljósmyndir á Det Arnamagnæanske Institut í Kaupmannahöfn.