Skráningarfærsla handrits

PDF
PDF

AM 602 a 4to

Mærþallar saga

Tungumál textans
íslenska

Innihald

1 (1r-6r)
Mærþallar saga
Titill í handriti

Mærþallar Saga

Vensl

Sagan er skrifuð upp eftir þessu handriti í Lbs 533 4to.

Upphaf

Einn hertugi var sá sem átti eina unga frú …

Niðurlag

… og endar hér Mærþallar sögu.

Notaskrá

Sagan er prentuð eftir þessu handriti í Íslenzkum þjóðsögum II, s. 424-427.

Jón Þorkelsson Om Digtningen på Island, s. 209.

Efnisorð
2 (6v-7v)
Kvæði af Salaría
Titill í handriti

Kvæði af Salaría

Upphaf

Heim í kóngs eins herra borg / haldin var með prýði …

Viðlag

Salaría var sæmdar frú, / sú var ein eg segi, / hreina trú við herrann brá hún eigi.

Niðurlag

… við herrann brá hún eigi.

Lýsing á handriti

Blaðefni
Pappír.
Blaðfjöldi
8 blöð (157 mm x 105 mm). Bl. 8 autt.
Tölusetning blaða

Blaðmerkt 1-7 með rauðu bleki, líklega af Kålund.

Kveraskipan

Eitt kver (bl. 1–8, 4 tvinn).

Umbrot

Eindálka.

Leturflötur er 130-135 mm x 90 mm.

Línufjöldi er 23-25.

Ástand

Víða strikað undir orð og setningar með blýanti.

Blekklessur víða.

Skrifarar og skrift

Óþekktur skrifari, fljótaskrift.

Band

Band frá árunum 1772-1780 (160 mm x 110 mm x 4 mm). Pappaspjöld og kjölur klædd handunnum pappír. Efnisyfirlit og safnmark framan á kápu. Blár safnmarksmiði á kili. Á spjaldblöðum sést spegilmynd af prentuðu máli.

Uppruni og ferill

Uppruni

Handritið er tímasett til um 1700 í  Katalog I , bls. 770.

Aðföng

Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við handritinu 20. desember 1983.

Aðrar upplýsingar

Skráningarferill

Tekið eftir Katalog I , bls. 770 (nr. 1522). Kålund gekk frá handritinu til skráningar 14. febrúar 1888. ÞS skráði 28. ágúst 2001; endurskráði samkvæmt reglum TEIP5 25.-26. september 2017.

Myndir af handritinu

Svart-hvítar ljósmyndir á Det Arnamagnæanske Institut í Kaupmannahöfn.

Notaskrá

Höfundur: Bjarni Einarsson
Titill: Munnmælasögur 17. aldar, Íslenzk rit síðari alda
Umfang: 6
Titill: Íslenzkar þjóðsögur og æfintýri
Ritstjóri / Útgefandi: Jón Árnason
Titill: Katalog over Den Arnamagnæanske Håndskriftsamling
Ritstjóri / Útgefandi: Kålund, Kristian
Lýsigögn
×

Lýsigögn