Skráningarfærsla handrits

PDF
PDF

AM 601 b 4to

Hrómundar saga Greipssonar ; Ísland, 1600-1700

Tungumál textans
íslenska

Innihald

1 (1r-6r)
Hrómundar saga Greipssonar
Titill í handriti

Saga af Hromu[n]de Greipszyne

Upphaf

[S]á konungr rieþe fra Gørdo er Olafr het

Niðurlag

Eru af þeim komnar konunga ætter oc kappar mikler, oc lýkr hier sgo Hromundz Greipzsonar.

Athugasemd

Samin upp úr rímunum.

2 (6v-10v)
Bragða-Ölvis saga
Titill í handriti

Hier Biriar Søgu Af Bragþa lver

Upphaf

I þann týma er Magnus konungr hinn góþi stýrþi Noreg

Niðurlag

oc hafþi [skr. hrfþi] þar mikil rad oc stor metord oc lýkr hier fra honum aþ seigia

Athugasemd

Samin upp úr rímunum.

Lýsing á handriti

Blaðefni
Pappír (vatnsmerki)
Blaðfjöldi
10 blöð (212 mm x 168 mm).
Tölusetning blaða

Síðari tíma blaðmerking með rauðu bleki, 1-10.

Kveraskipan

Tvö kver:

  • Kver I: 4 blöð, 2 tvinn.
  • Kver II: 6 blöð, 2 tvinn og 2 stök blöð aftast.

Umbrot

  • Leturflötur er 170 +/- 1 mm x 135 +/- 1 mm.
  • Línufjöldi er 26-28.
  • Strikað fyrir leturfleti á ytri spássíu víða, einnig fyrir línum á stöku stað.
  • Griporð.
  • Eyða fyrir upphafsstaf fremst.

Ástand

Krotað yfir orð á stöku stað.

Skrifarar og skrift

Ein hönd.

Óþekktur skrifari.

Skreytingar

Upphafsstafir dregnir stærra og sums staðar dálítið skreyttir, einkum á 1v, 6v, 7v, 8r, 9r.

Spássíugreinar og aðrar viðbætur

  • Miklar leiðréttingar og athugasemdir á spássíum, sumt með hendi Árna Magnússonar.
  • Árni bætir við efst á 1r: ur Rïmunum og efst á 6v: Utdreiged ur Rïmunum af lver sterka sem eru 7 ad tỏlu.
  • Griporð e.t.v. með annarri hendi.

Band

Band frá c1772-1780 (215 mm x 169 mm x 6 mm). Pappaspjöld og kjölur klædd handunnum pappír. Efnisyfirlit framan á kápu. Á spjaldblöðum sést spegilmynd af prentuðu máli.

Uppruni og ferill

Uppruni

Tímasett til 17. aldar (sjá  Katalog (I) 1889:769 ).

Aðföng

Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við handritinu 12. desember 1975.

Aðrar upplýsingar

Skráningarferill

Viðgerðarsaga

Matthias Larsen Bloch batt á árunum 1772-1780.

Myndir af handritinu

Svart-hvítar ljósmyndir á Det Arnamagnæanske Institut í Kaupmannahöfn.

Notaskrá

Titill: , Magnúsarkver. The writings of Magnús Ólafsson of Laufás
Ritstjóri / Útgefandi: Faulkes, Anthony
Umfang: 40
Titill: Katalog over Den Arnamagnæanske Håndskriftsamling
Ritstjóri / Útgefandi: Kålund, Kristian
Höfundur: Kapitan, Katarzyna Anna, Stegmann, Beeke
Titill: Writing, correcting and annotating AM 604 b 4to. Material and multispectral analysis, Opuscula XVII
Umfang: s. 129-149
Lýsigögn
×

Lýsigögn