„Hun var ecke forkunnar væn “
„hofdingia honum vilivm “
Vantar framan og aftan af.
Band frá febrúar 1967.
Fastur seðill (161 mm x 109 mm): „Vilhjálms saga sjóðs defect. Frá Jóni Einarssyni.“
Handritið er tímasett til um 1600 í Katalog I , bls. 768. Var að sögn Árna Magnússonar bundið með AM 657 c 4to, sem inniheldur Michaels sögu, Maríu sögu egipzku, Eiríks sögu víðförla og Guðmundar sögu biskups frá 14. öld; 51 blað. Á blaði þar fremst segir Árni að Vilhjálms saga sjóðs defect hafi verið fremst en hann hafi tekið hana burt af því að hún passaði ekki við hinar og að auki með miklu yngri skrift. Sjá AM 599 a-b 4to, bl. 82v; útg. bls. 29.
Á blaði í AM 657 c 4to segist Árni Magnússon hafa fengið bókina sem þetta handrit var í, ásamt AM 657 c 4to, frá Jóni Einarssyni.
Þeim er lýst í AM 435 a 4to , bl. 106, sem eigi gamalli membrana.
Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við handritinu 26. mars 1992.
Viðgert og bundið í Kaupmannahöfn í febrúar 1967. Eldra band fylgir.
Svart-hvítar ljósmyndir á Det Arnamagnæanske Institut í Kaupmannahöfn.