Bl. 104 autt að mestu, bl. 107v upprunalega autt.
Leifar af upphafsstöfum og fyrirsögnum sjást ekki.
Athugagrein eiganda frá c1680 á bl. 107v.
Engir seðlar með hendi Árna Magnússonar.
Tímasett til síðari hluta 15. aldar (sbr. ONPRegistre , bls. 456), en til 15. aldar í Katalog I , bls. 761. Var áður hluti af stærri bók sem innihélt einnig AM 593 b 4to (sbr. AM 435 a 4to, bl. 104v (bls. 36 í prentaðri útgáfu)).
Bókina sem handritið tilheyrði fékk Árni Magnússon frá Jóni Þorkelssyni Vídalín árið 1702 (sbr. AM 435 a 4to, bl. 104v).
Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við handritinu 27. nóvember 1996.
Viðgert og bundið janúar til febrúar 1967. Með fylgdi nákvæm lýsing á ljósmyndun og viðgerð.
Viðgert og bundið í desember 1961.
Svart-hvítar ljósmyndir á Det Arnamagnæanske Institut í Kaupmannahöfn.