Skráningarfærsla handrits

PDF
PDF

AM 589 e 4to

Sögubók ; Ísland, 1450-1500

Tungumál textans
íslenska

Innihald

1 (1r-5v)
Þorsteinn þáttur bæjarmagns
Upphaf

Í þann tíma er Hákon jarl Sigurðarson réð fyrir Noregi …

Niðurlag

… þá hurfu hornin Hvítingar.

Skrifaraklausa

Hafi sá þakk fyrir er skrifaði og sá er las en hinir skammir er óhljóð gjörðu.

Baktitill

Og lúkum vér þar sögu Þorsteins bæjarbarns.

2 (5v-13v)
Egils saga einhenda og Ásmundar berserkjabana
Upphaf

[H]ertryggur hefir konungur heitið …

Niðurlag

… og öngu því sem þar var inni.

Skrifaraklausa

Hafi þeir þökk er skrifað hafa og svo sá er las og þeir er til hlýddu og sá er þessa sögu hefur fyrst saman sett.

Baktitill

Og lúkum vær hér sögu þeirra Egils og Ásmundar fyrir því að bókfellið minnkar en blekið þykknar …

3 (14r-19v)
Hálfdanar saga Brönufóstra
Upphaf

[H]ringur hefur konungur heitið er réð fyrir Danmörk …

Niðurlag

… og varð frægur maður. Þau Hálfdan …

Athugasemd

Óheil, vantar nokkrar línur aftan af.

4 (20r-23r)
Ála flekks saga
Niðurlag

… og jók þar sína ætt

Skrifaraklausa

Hafi þeir þakk er hlýddu en hinir skamm er óhljóð gerðu.

Baktitill

enda er hér endir á sögu Ála flekks.

Athugasemd

Óheil, vantar framan af.

Efnisorð
5 (23v)
Hákonar þáttur Hárekssonar
Upphaf

… Sigurðarson réð fyrir Noregi var sá maður austur í Víkinni er Hárekur hét …

Niðurlag

… um allt saman og er þar var kom …

Athugasemd

Óheill, vantar aftan af.

Efnisorð

Lýsing á handriti

Blaðefni
Skinn.
Blaðfjöldi
i + 23 + i blöð (195-200 mm x 158-164 mm).
Tölusetning blaða

Síðari tíma blaðmerking 1-23.

Kveraskipan

Þrjú kver og 4 stök blöð.

  • Bl. 1: stakt blað.
  • Kver I: bl. 2-7, 3 tvinn.
  • Bl. 8: stakt blað.
  • Bl. 9: stakt blað.
  • Kver II: bl. 10-15, 2 tvinn, 2 stök blöð.
  • Bl. 16: stakt blað.
  • Kver III: bl. 17-23, 3 tvinn, stakt blað.

Umbrot

  • Eindálka.
  • Leturflötur er ca 155-168 mm x 143-150 mm.
  • Línufjöldi er 33-42.
  • Sums staðar sést að gatað hefur verið fyrir línum.

Ástand

  • Blöð vantar í handritið.
  • Handritið er skítugt og slitið og illlæsilegt á köflum vegna þess. Sums staðar hefur texti morknað af, einkum við kjöl.
  • Texti hefur skerst á bl. 17 og 19-23 vegna þess að skorið hefur verið eftir ytri spássíu, einnig ofan af bl. 12 og 22.
  • Göt á bl. 3, 5, 7, 9, 11, 21.

Skrifarar og skrift
Tvær hendur. Óþekktir skrifarar, árléttiskrift (sjá A Loth 1977:17).

I. bl. 1r-9r5, 9r13-36, 9v6-25, 10r1-36, 10v18-11r6 teinvm, 11v1-3 vpp, 12r1-16 voru, 12r30- j-33, 12v26-13r5 brynhilldj, 13r18 haufdu-13v18 leingi, 13v25 hafa-32, 14r25-33, 16r15-37, 18r11-19v, 20r21-22r11 drecka, 22r23 þu-23v30.

II. bl. 9r6-12, 9v1-5, 9v26-35, 10v1-17, 11r6 og fylgdi-35, 11v3 og uoru-33, 12r16 megi-30 kome, 12v1-25, 13r5 let-18 ueizlu, 13v18 Augmundr-25 hann, 14r1-24, 14v-16r14, 16v1-18r10, 20r1-20, 22r11 brudlaup-23 hefer, 23v31-34

Skreytingar

Skrautbekkur þvert yfir blaðið milli efnisþátta á bl. 5v.

Spássíugreinar og aðrar viðbætur

Band

Band frá ágúst 1966 (208 mm x 191 mm x 28 mm). Pappaspjöld klædd fínofnum líndúk, leður á kili og hornum. Saumað á móttök. Saurblöð tilheyra nýju bandi. Handritið liggur í öskju ásamt eldra bandi.

Eldra band frá árunum 1772-1780. Pappaspjöld og kjölur klædd handunnum pappír. Safnmark og efnisyfirlit framan á kápu. Blár safnmarksmiði á kili. Á spjaldblöðum sést spegilmynd af prentuðu máli.

Fylgigögn

Laus seðill frá Kaupmannahöfn með upplýsingum um forvörslu.

Uppruni og ferill

Uppruni

Handritið er skrifað á Íslandi. Það er tímasett til seinni hluta 15. aldar (sjá  ONPRegistre , bls. 456), en í  Katalog I , bls. 755, til 15. aldar.

Upprunalega hluti af stærra handriti. Handritin í AM 589 a-f 4to eru úr sömu bók.

Ferill

Árni Magnússon fékk AM 589 a-f 4to frá Birni Þorleifssyni, síðar biskupi á Hólum.

Aðföng

Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við handritinu 14. desember 1988.

Aðrar upplýsingar

Skráningarferill

  • ÞS skráði samkvæmt reglum TEI P529.-30. desember 2009.
  • ÞS færði inn grunnupplýsingar 21. febrúar 2003.
  • Kålund gekk frá handritinu til skráningar 28. október 1886 (sjá Katalog I 1889:755 (nr. 1487) .

Viðgerðarsaga

Viðgert og bundið í Kaupmannahöfn í ágúst 1966. Í öskju. Með fylgir gamalt band úr handgerðum pappír frá tíma Matthiasar Larsen Bloch c1772-1780.

Myndir af handritinu

Svart-hvítar ljósmyndir á Det Arnamagnæanske Institut í Kaupmannahöfn.

Ljósprent í  Early Icelandic Manuscripts in Facsimile XI, 1977 .

Notaskrá

Titill: , Úlfhams saga
Ritstjóri / Útgefandi: Aðalheiður Guðmundsdóttir
Umfang: 53
Titill: Fornaldar sögur Norðrlanda III.
Ritstjóri / Útgefandi: Rafn, C. C.
Titill: , Mírmanns saga
Ritstjóri / Útgefandi: Slay, Desmond
Umfang: 17
Höfundur: Hreinn Benediktsson
Titill: Linguistic studies, historical and comparative
Höfundur: Jóhannes Bjarni Sigtryggsson
Titill: Hálfdanar saga Brönufóstra (a- og b-gerð)
Höfundur: Jóhannes Bjarni Sigtryggsson
Titill: Hugleiðingar um stafréttar uppskriftir, Gripla
Umfang: 16
Titill: Katalog over Den Arnamagnæanske Håndskriftsamling
Ritstjóri / Útgefandi: Kålund, Kristian
Titill: Hákonar saga Hárekssonar,
Ritstjóri / Útgefandi: Overgaard, Mariane
Umfang: 32
Titill: Ordbog over det norrøne prosasprog: Registre
Ritstjóri / Útgefandi: Den arnamagnæanske kommision
Höfundur: Skårup, Povl
Titill: Tre marginalnoter om Erex saga, Gripla
Umfang: 6
Titill: Tiodielis saga,
Ritstjóri / Útgefandi: Ohlsson, Tove Hovn
Umfang: 72
Lýsigögn
×

Lýsigögn