„Í þann tíma er Hákon jarl Sigurðarson réð fyrir Noregi …“
„… þá hurfu hornin Hvítingar.“
„Hafi sá þakk fyrir er skrifaði og sá er las en hinir skammir er óhljóð gjörðu.“
Og lúkum vér þar sögu Þorsteins bæjarbarns.
„[H]ertryggur hefir konungur heitið …“
„… og öngu því sem þar var inni.“
„Hafi þeir þökk er skrifað hafa og svo sá er las og þeir er til hlýddu og sá er þessa sögu hefur fyrst saman sett.“
Og lúkum vær hér sögu þeirra Egils og Ásmundar fyrir því að bókfellið minnkar en blekið þykknar …
„[H]ringur hefur konungur heitið er réð fyrir Danmörk …“
„… og varð frægur maður. Þau Hálfdan …“
Óheil, vantar nokkrar línur aftan af.
„… og jók þar sína ætt“
„Hafi þeir þakk er hlýddu en hinir skamm er óhljóð gerðu.“
enda er hér endir á sögu Ála flekks.
Óheil, vantar framan af.
„… Sigurðarson réð fyrir Noregi var sá maður austur í Víkinni er Hárekur hét …“
„… um allt saman og er þar var kom …“
Óheill, vantar aftan af.
Síðari tíma blaðmerking 1-23.
Þrjú kver og 4 stök blöð.
I. bl. 1r-9r5, 9r13-36, 9v6-25, 10r1-36, 10v18-11r6 teinvm, 11v1-3 vpp, 12r1-16 voru, 12r30- j-33, 12v26-13r5 brynhilldj, 13r18 haufdu-13v18 leingi, 13v25 hafa-32, 14r25-33, 16r15-37, 18r11-19v, 20r21-22r11 drecka, 22r23 þu-23v30.
II. bl. 9r6-12, 9v1-5, 9v26-35, 10v1-17, 11r6 og fylgdi-35, 11v3 og uoru-33, 12r16 megi-30 kome, 12v1-25, 13r5 let-18 ueizlu, 13v18 Augmundr-25 hann, 14r1-24, 14v-16r14, 16v1-18r10, 20r1-20, 22r11 brudlaup-23 hefer, 23v31-34
Skrautbekkur þvert yfir blaðið milli efnisþátta á bl. 5v.
Band frá ágúst 1966 (208 mm x 191 mm x 28 mm). Pappaspjöld klædd fínofnum líndúk, leður á kili og hornum. Saumað á móttök. Saurblöð tilheyra nýju bandi. Handritið liggur í öskju ásamt eldra bandi.
Eldra band frá árunum 1772-1780. Pappaspjöld og kjölur klædd handunnum pappír. Safnmark og efnisyfirlit framan á kápu. Blár safnmarksmiði á kili. Á spjaldblöðum sést spegilmynd af prentuðu máli.
Laus seðill frá Kaupmannahöfn með upplýsingum um forvörslu.
Handritið er skrifað á Íslandi. Það er tímasett til seinni hluta 15. aldar (sjá ONPRegistre , bls. 456), en í Katalog I , bls. 755, til 15. aldar.
Upprunalega hluti af stærra handriti. Handritin í AM 589 a-f 4to eru úr sömu bók.
Árni Magnússon fékk AM 589 a-f 4to frá Birni Þorleifssyni, síðar biskupi á Hólum.
Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við handritinu 14. desember 1988.
Viðgert og bundið í Kaupmannahöfn í ágúst 1966. Í öskju. Með fylgir gamalt band úr handgerðum pappír frá tíma Matthiasar Larsen Bloch c1772-1780.
Svart-hvítar ljósmyndir á Det Arnamagnæanske Institut í Kaupmannahöfn.
Ljósprent í Early Icelandic Manuscripts in Facsimile XI, 1977 .