„Innann iijdia dagz säu þeir skip ſigla ...“
„... tengda vin áttu til daudadagz“
og endast hier Nu þesse sögu þáttur
Vantar framan af.
Á saurblöðum er skjaldarmerki Amsterdam.
Blaðmerking með rauðu bleki 1-3, síðari tíma viðbót.
Eitt (ófullkomið) kver:
Ein hönd, óþekktur skrifari, fljótaskrift.
Þrír lítlir bókarhnútar bl. 3r.
Skreyting við eða umhverfis griporð.
Band frá árunum 1772-1780 ( mm x mm x mm). Pappaspjöld og kjölur klædd handunnum pappír. Titlar og safnmark skrifað framan á kápu, leifar af límmiða á kili.
Fastur seðill (áður blað úr riti) (199 mm x 163 mm) með hendi Árna Magnússonar: „Aftan af Úlfs sögu Uggasonar, ut mihi videtur, var aftast í bók síra Þorkels Oddssonar í Gaulverjabæ.“
Handritið er skrifað á Íslandi og er tímasett til síðari helmings 17. aldar í Katalog I, bls. 753. Það var upprunalega hluti af stærri bók.
Samkvæmt AM 477 fol. bl. 40r-v, voru Flóres saga og Blankiflúr og tvær gerðir af Gvímars sögu (Guimars sögu) einnig hluti af AM 588 a-r 4to.
Handritið var aftast í bók séra Þorkels Oddssonar í Gaulverjabæ (sjá umslag með hendi Árna Magnússonar).
Þorkell erfði handritið frá föður sínum Oddi Eyjólfssyni hinum eldra. Áður hafði það tilheyrt Einari Eyjólfssyni, og eftir lát hans komst handritið í hendur Odds sem giftist ekkju Einars. Oddur lánaði síðan handritið til ættingja síns, Páls Oddssonar. Hast 1960: 2, 151-152.
Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við handritinu 20. desember 1983.
Jens Jacob Webber batt á árunum 1772-1780.