Valdimars saga var skrifuð eftir bók í fólíó sem sr. Þorsteinn Björnsson á Útskálum hafði átt og síðar Sigurður Björnsson lögmaður, en Magnús Þórólfsson skrifaði. Árni Magnússon reif þessa bók í sundur og taldi ónýta (sjá seðil).
Valdimars saga, Konráðs saga keisarasonar og Þjalar-Jóns saga
„Sagann af Valldemar (Fracka, en strikað yfir) konungs ſyne“
„Nu byriaſt saga Af þialar Iöne og Eyrike For|vitna“
„Anno 1694“
Blaðmerking með blýanti 1-40, síðari tíma viðbót.
Eldri blaðsíðumerking 161-240 sem er áframhaldandi frá AM 585 d 4to.
Fimm kver:
Með hendi Jóns Þórðarsonar, fljótaskrift. Sama hönd og í AM 345 4to.
Upphafstafir eru blekdregnir skrautstafir (ca. 2-6 línur).
Skreyting við eða umhverfis griporð.
Spássíugreinar með hendi skrifara.
Band frá árunum 1772-1780 ( mm x mm x mm). Pappaspjöld og kjölur klædd handunnum pappír. Titlar og safnmark skrifað framan á kápu, leifar af límmiða á kili.
Seðill með hendi Árna Magnússonar.
Handritið var skrifað á Íslandi og af Jóni Þórðarsyni árið 1694, skv. skrifaraklausu (sjá einnig Katalog I, bls. 747). Það er framhald af AM 585 d 4to eins og sést af blaðmerkingu.
Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við handritinu 30. nóvember 1982.
Jens Jacob Webber batt á árunum 1772-1780.