Skráningarfærsla handrits

AM 585 b 4to

Úlfars saga sterka ; Ísland, 1688

Athugasemd
Framhald af AM 585 a 4to, sbr. blaðsíðutal.
Tungumál textans
íslenska

Innihald

(1r-16v)
Úlfars saga sterka
Titill í handriti

Sagann af Vlfare sterka

Skrifaraklausa

Anno 1688 17 Dec.

Efnisorð

Lýsing á handriti

Blaðefni
Pappír með vatnsmerkjum.
  • Aðalmerki: Skjaldarmerki Amsterdam með stórri kórónu efst (bl. 1, 2, 7, 8, 10, 12, 13, 15 ).
Vatnsmerkið, Skjaldarmerki Amsterdam, er ekki eins og í AM 585 4to, enginn kross á kórónu og ekkert fangamark undir því.
Blaðfjöldi
16 blöð (200 mm x 160 mm).
Tölusetning blaða

Blaðmerking með blýanti 1-16, síðari tíma viðbót.

Leifar af eldri blaðsíðumerkingu með svörtu bleki 55-86.

Kveraskipan

Tvö kver:

  • Kver I: bl. 1-8 (1+8, 2+7, 3+6, 4+5), 4 tvinn.
  • Kver II: bl. 9-16 (9+16, 10+15, 11+14, 12+13), 4 tvinn.

Umbrot

  • Eindálka.
  • Letur flötur er 175 mm x 125 mm.
  • Línufjöldi er 30-32.
  • Kaflatal á spássíum.
  • Griporð, pennaflúruð.

Ástand

  • Blöð óhrein og dökk.
  • Jaðar er dekkri en blöðin sjálf.
  • Dökkur blettur á efri spássíu, nær miðju, á öllum blöðum.

Skrifarar og skrift

Með hendi Jóns Þórðarsonar, kansellískrift, griporð í fljótaskrift. Sama hönd og í AM 345 4to.

Skreytingar

Upphafsstafir skreyttir (allt að 6 línum), sumir með blómaskreytingum. Stafurinn Þ bl. 1r, andlit með skegg.

Á bl. 1r, fyrirsögn og efsta lína dreginn hærri og með annari skriftartegund.

Skreyting við eða umhverfis griporð.

Spássíugreinar og aðrar viðbætur

Á bl. 14v eru spássíugreinar, erfitt að lesa þar sem blek hefur dofnað.

Band

Band frá árunum 1772-1780 ( mm x mm x mm). Pappaspjöld og kjölur klædd handunnum pappír. Titlar og safnmark skrifað framan á kápu, leifar af límmiða á kili.

Uppruni og ferill

Uppruni

Handritið var skrifað á Íslandi árið 1688 (sjá  Katalog I, bls. 746).

Ferill

Aðföng

Stofnun Árna Magnússonar tók við handritinu 30. nóvember 1982.

Aðrar upplýsingar

Skráningarferill
  • MJG uppfærði með gögnum frá BS, 26. febrúar 2024.
  • ÞS skráði 15. ágúst 2001.
  • Tekið eftir Katalog I, bls. 746 (nr. 1456). Kålund gekk frá handritinu til skráningar í október 188?.
Viðgerðarsaga

Jens Jacob Webber batt á árunum 1772-1780.

Myndir af handritinu

  • Svart-hvítar ljósmyndir á Det Arnamagnæanske Institut í Kaupmannahöfn.
  • Svart-hvítar ljósmyndir á Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi, sem keypti þær af Arne Mann Nielsen í nóvember 1979.

Notaskrá

Titill: Katalog over Den Arnamagnæanske Håndskriftsamling
Ritstjóri / Útgefandi: Kålund, Kristian
Lýsigögn
×

Lýsigögn