Blaðmerking með blýanti 1-16, síðari tíma viðbót.
Leifar af eldri blaðsíðumerkingu með svörtu bleki 55-86.
Tvö kver:
Með hendi Jóns Þórðarsonar, kansellískrift, griporð í fljótaskrift. Sama hönd og í AM 345 4to.
Upphafsstafir skreyttir (allt að 6 línum), sumir með blómaskreytingum. Stafurinn „Þ“ bl. 1r, andlit með skegg.
Á bl. 1r, fyrirsögn og efsta lína dreginn hærri og með annari skriftartegund.
Skreyting við eða umhverfis griporð.
Á bl. 14v eru spássíugreinar, erfitt að lesa þar sem blek hefur dofnað.
Band frá árunum 1772-1780 ( mm x mm x mm). Pappaspjöld og kjölur klædd handunnum pappír. Titlar og safnmark skrifað framan á kápu, leifar af límmiða á kili.
Stofnun Árna Magnússonar tók við handritinu 30. nóvember 1982.
Jens Jacob Webber batt á árunum 1772-1780.