Skráningarfærsla handrits

PDF
PDF

AM 582 4to

Sögubók ; Ísland, 1692

Tungumál textans
íslenska

Innihald

1 (1r-6r)
Hákonar þáttur Hárekssonar
Titill í handriti

Söguþáttur af Hákoni Hárekssyni

Upphaf

Einn bóndi var í Noregs kóngs ríki …

Niðurlag

… lét hann fyrir glutur og vangæslu sína.

Baktitill

Og lýkur sögu af Hákoni Hárekssyni.

Efnisorð
2 (6v-7r)
Nitida saga
Vensl

Stærsti hluti þessa texta er varðveittur í AM 537 4to.

Athugasemd

Einungis brot. Fyrra brotið er framarlega úr sögunni en hið síðara en niðurlag hennar.

Efnisorð
2.1 (6v)
Enginn titill
Upphaf

… væri við snjóhvíta litu …

Niðurlag

… að hvergi í heiminum megi finnast náttúru …

2.2 (7r)
Enginn titill
Upphaf

… ta]kist að öll ríkin fengu frið …

Niðurlag

… af hinni frægu Nitida og Livorio kóngi.

3 (7v-20r)
Egils saga einhenda og Ásmundar berserkjabana
Titill í handriti

Hér byrjar sögu af Egli einhenda

Upphaf

Hertryggur hefur kóngur heitið …

Niðurlag

… hefur enginn hlutur fundist af henni og engu því sem þar var á.

Baktitill

Og lúkum vér svo þessari sögu. Finis. Endi.

4 (20r-36r)
Hervarar saga og Heiðreks
Athugasemd

Skipt í tvo hluta.

4.1 (20r-21v)
Hervarar þáttur hinn gamli finnst svo skrifaður sem hér eftirfylgir
Titill í handriti

Hervarar þáttur hinn gamli finnst svo skrifaður sem hér eftirfylgir

Upphaf

Svo finnst skrifað í fornum bókum …

Niðurlag

… þá strengdu heit Arngríms synir.

4.2 (21v-36r)
Sagan af Heiðreki kóngi og hans ættmönnum
Titill í handriti

Sagan af Heiðreki kóngi og hans ættmönnum

Upphaf

Sigurlami hét kóngur, hann réð fyrir Garðaríki …

Niðurlag

… er Ívar kóngur hinn víðfarni hafði átt.

5 (36v)
Konungatal
Upphaf

51. Gorm hinn gamli …

Niðurlag

… 105 Friðrich.

Athugasemd

Aðeins brot.

Efnisorð
6 (37r-40v)
Illuga saga Gríðarfóstra
Titill í handriti

Sagan af Illuga Gríðarfóstra

Upphaf

Sá kóngur réð fyrir Danmörk er Hringur hét …

Niðurlag

… varð Illugi fóstbróðir Gnoðar-Ásmundar.

Baktitill

Og lýkur svo sögu Illuga Gríðarfóstra.

7 (40v)
Fertrams saga og Platós
Titill í handriti

Hér byrjar sögur af hinum volduga Fertram og hans bróður Plató.

Vensl

Textinn er varðveittur í AM 537 4to.

Upphaf

Artús hét kóngur megtugur og stórauðugur …

Niðurlag

… unni hver maður þess lengi senn, nú var

Athugasemd

Einungis upphaf og límt yfir (nú laust frá).

Efnisorð
8 (41r-41r)
Þjalar-Jóns saga
Vensl

Textinn er varðveittur í AM 537 4to.

Upphaf

… fólk ríkisins, og lýsir því, að hann ætlar að sækja brullaup sitt …

Niðurlag

… en annar Svipdagur eftir föður Jóns k(onungs).

Baktitill

Og lúkum vér svo þessari sögu, og séum ávalt Guði befalaðir.

Athugasemd

Aðeins niðurlag sögunnar og strikað yfir í kross.

Efnisorð
9 (41v-44v)
Eiríks saga víðförla
Titill í handriti

Söguþáttur af Eiríki víðförla

Upphaf

Þrándur er kóngur nefndur er fyrstur réði fyrir Þrándheimi …

Niðurlag

… sagt förunautum sínum þann fyrirburð, sem bar fyrir hann …

Athugasemd

Niðurlagi bætt við með annarri hendi á neðri spássíu.

Efnisorð
10 (45r-59r)
Kjalnesinga saga
Titill í handriti

Hér byrjar sögu af Búa Andríðarsyni

Upphaf

Helgi bjóla Ketils flatnefs, nam Kjalarnes …

Niðurlag

… Af B(úa) Andríðarsyni er mikil ætt komin.

Baktitill

Og endar þar með þessa Kjalarness sögu. Hæc legens condona candide tu mihi lector.

11 (59v-64r)
Jökuls þáttur Búasonar
Titill í handriti

Nú eftirfylgir sagan af Jökli Búasyni

Upphaf

Jökli þótti nú svo illt verk sitt …

Niðurlag

… því löndin eru oss fjarlæg.

Skrifaraklausa

Finis ad lectorem. definitum die 21 Septembris Anno 1692 Ionas Wigfusius.

11.1 (64r)
Lausavísa
Upphaf

Þiggi sá sem þetta á …

Niðurlag

… hoskur allar stundir.

Skrifaraklausa
12 (64v-68v)
Víga-Glúms saga
Titill í handriti

Hér byrjar sögu Glúms Eyjólfssonar

Upphaf

Helgi hét maður og var kallaður Helgi hinn magri …

Niðurlag

… sagðist hann mundi láta systur …

Athugasemd

Niðurlag vantar.

Handritið endaði upprunalega á bl. 64r.

Lýsing á handriti

Blaðefni
Pappír.
Blaðfjöldi
i + 72 + i blöð (194-195 mm x 150-155 mm). Að meðtöldum innskotsblöðum.
Tölusetning blaða

Handritið er blaðmerkt 1-68 (auk 6bis, 7bis 36bis og 40bis), sum blöðin með bleki og önnur með blýanti.

Kveraskipan

Tíu kver.

  • Kver I: bl. 1-6, 2 tvinn og 2 stök blöð.
  • Kver II: bl. 7-10, 2 tvinn.
  • Kver III: bl. 11-18, 4 tvinn.
  • Kver IV: bl. 19-26, 4 tvinn.
  • Kver V: bl. 27-34, 4 tvinn.
  • Kver VI: bl. 35-44, 3 stök blöð, 3 tvinn og stakt blað.
  • Kver VII: bl. 45-52, 4 tvinn.
  • Kver VIII: bl. 53-60, 4 tvinn.
  • Kver IX. bl. 61-64, 2 tvinn.
  • Kver X: bl. 65-68, 2 tvinn.

Bl. 1-10, 35-37, 40, 43-44, 61 og 64 voru laus en sum þeirra skeytt saman í tvinn þegar handritið var bundið inn.
Umbrot

  • Eindálka.
  • Leturflötur er ca 150-160 mm x 125-135 mm.
  • Línufjöldi er 25-30.
  • Síðutitlar.
  • Griporð.

Ástand

  • Neðri hluti bl. 6 og 36 skorinn af.
  • Límt yfir bl. 6v-7r (nú laust frá), 36v og hluta af bl. 40v.
  • Strikað yfir texta á bl. 40r.

Skrifarar og skrift
Þrjár hendur.

Blöð 1-63 að mestu með hendi Gríms Árnasonar á Möðruvöllum, fljótaskrift.

Blöð 64-68 að mestu með hendi Jóns Vigfússonar, fljótaskrift.

Þriðji maður skrifar hluta af textanum.

Skreytingar

Skreyttir upphafsstafir á bl. 7v og frá bl. 57.

Bókahnútur á bl. 64r.

Spássíugreinar og aðrar viðbætur

  • Bl. 64-68 innskotsbl., enn fremur eru tvö innskotsblöð á eftir bl. 6 og eitt innskotsblað á eftir bl. 36 og 40.
  • Efnisyfirlit gert fyrir Árna Magnússon á blaði fremst. Á því eru einnig tilgreindar sögurnar í AM 537 4to og að lokum: Hér var og í: Hrafnagaldur Óðins og Dissertatiuncula de origine vocis Væringiar, sem ég tók hér frá.
  • Síðustu línunum í Eiríks sögu víðförla bætt við fyrir Árna Magnússon.
  • Spássíugreinar víða.

Band

Band frá mars 1985 (208 mm x 183 mm x 22 mm). Pappaspjöld klædd fínofnum líndúk. Grófari dúkur á kili og hornum. Saumað á móttök. Saurblöð tilheyra bandi.

Fylgigögn

  • Fastur seðill (194 mm x 153 mm) með hendi Árna Magnússonar með efnisyfirliti og upplýsingum um feril og uppruna: Af Hákone Hárekssyne Af Niteda frægu Af Egle Einhendta Hervarar þattur af Heidreke konunge og hanns ættmnnum af Jlluga gridarfostra af Fertramm og Pluto af þialar Jone af Eirike vidforla af Bua Audridarsyne af Jkle Buasyne af Vigaglum. defect. Hier var og Hrafnagalldur Ödins og Differenticula de originie vocis Væringiar sem eg tok hier fra [Jafnframt:] ed med hende Grims Arnasonar ä Mdruvllum. þessar sgur keypti eg af Benedict Haannessyne (fra Snæfillum) 1710. er hann feck þær af Grime Einarssyne.
  • Laus seðill frá Kaupmannahöfn með upplýsingum um forvörslu.
  • Laus seðill frá Kaupmannahöfn með kveraskiptingu.

Uppruni og ferill

Uppruni

  • Handritið er skrifað á Íslandi. Það er tímasett til 17. aldar í  Katalog I , bls. 744, en ártalið 1692 er undir síðasta upprunalega efnisþættinum.
  • Í handritinu voru einnig þrjár riddarasögur: Nitida saga, Fertrams saga og Platós og Þjalar-Jóns saga, sem eru nú í AM 537 4to og til að fjarlægja þær að fullu hefur verið skorið neðan af blöðum, límt yfir og strikað út.

Ferill

Árni Magnússon keypti af Benedikt Hannessyni á Snæfjöllum 1710, en hann hafði fengið frá Grími Einarssyni.

Aðföng

Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við handritinu 11. nóvember 1985.

Aðrar upplýsingar

Skráningarferill

ÞS skráði samkvæmt reglum TEI P5 3. nóvember 2009

ÞS færði inn grunnupplýsingar 19. desember 2001.

Kålund gekk frá handritinu til skráningar október 1887 ( Katalog I 1889:744 (nr. 1449) ).

GV sló inn texta af seðlum Árna Magnússonar undir umsjón ÞS og með hliðsjón af gögnum frá MJ.

Viðgerðarsaga

Viðgert og bundið af Birgitte Dall í mars 1985. Eldra band fylgir og skrá um kveraskiptingu.

Myndir af handritinu

  • Stafrænar myndir á www.sagnanet.is.
  • Svart-hvítar ljósmyndir á Det Arnamagnæanske Institut í Kaupmannahöfn.
  • Svart-hvítar ljósmyndir á Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi, sem keypti þær af Arne Mann Nielsen.

Notaskrá

Höfundur: Davíð Erlingsson
Titill: Illuga saga og Illuga dans, Gripla
Umfang: 1
Titill: Eiríks saga víðförla,
Ritstjóri / Útgefandi: Jensen, Helle
Umfang: 29
Titill: Katalog over Den Arnamagnæanske Håndskriftsamling
Ritstjóri / Útgefandi: Kålund, Kristian
Titill: Hákonar saga Hárekssonar,
Ritstjóri / Útgefandi: Overgaard, Mariane
Umfang: 32

Lýsigögn