„Inntak söguþátta af Jóni Upplendingakóngi og Ásmundi flagðagæfu ritaði ég eftir því sem ég heyrða …“
„… andaðist á Barði hjá Jóni presti Sveinssyni syni sínum 1690, 76 ára.“
Bl. 2v autt. Hvor tveggja textinn er prentaður í: Íslenzkum þjóðsögum og æfintýrum I, bls. 284-285, Íslenzkum þjóðsögum og ævintýrum I, bls. 273-274.
„Inntak úr söguþætti af Ásmundi flagðagæfu“
„Í dal einum fjarri þjóðbyggð í Noregi …“
„… Nær þú fékkst það feikna fall / flatur í miðri eysu.“
„Lýkur hér svá inntaki söguþáttarins af Ásmundi flagðagæfu.“
Textinn er prentaður í: Íslenzkum þjóðsögum og æfintýrum I, bls. 171-179, Íslenzkum þjóðsögum og ævintýrum I, bls. 163-171.
Handritið hefur nýlega verið blaðmerkt neðst fyrir miðju með blýanti.
Þrjú kver
Eindálka.
Leturflötur er ca 170-175 mm x 125-130 mm.
Línufjöldi ca 26-28.
Griporð á versósíðum blaða 3v-8v.
Eyjólfur Jónsson, blendingsskrift.
Band frá 1983 (204 mm x 188 mm x 10 mm). Pappaspjöld klædd fínofnum líndúki, grófari dúkur á kili og hornum. Saumað á móttök. Límmiðar framan á kápu og á kili með safnmarki og raðnúmeri. Saurblöð tilheyra bandi.
Með hendi sr. Eyjólfs Jónssonar og tímasett um 1700 í Katalog I , bls. 731.
Samkvæmt AM 477 fol. var áður undir þessu safnmarki einnig Ríma af Ásmundi flagðagæfu í 8vo, en vantar nú.
Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við handritinu 19. nóvember 1983.
Viðgert og bundið af Birgitte Dall 1983. Eldra band fylgir.
Svart-hvítar ljósmyndir á Det Arnamagnæanske Institut í Kaupmannahöfn.