Skráningarfærsla handrits

PDF
PDF

AM 567 XVII γ 4to

Mágus saga ; Ísland, 1390-1410

Tungumál textans
íslenska

Innihald

(1r-1v)
Mágus saga
Upphaf

… til þess hásætis …

Niðurlag

… léttir ei fyrr en hann kemur …

Athugasemd

Brot.

Efnisorð

Lýsing á handriti

Blaðefni
Skinn.
Blaðfjöldi
1 blað (228 mm x 161 mm).
Tölusetning blaða

Blaðmerking með rauðu bleki, 1 (e.t.v. Kålunds).

Umbrot

  • Eindálka.
  • Leturflötur er ca 200 mm x 132 mm.
  • Línufjöldi er 36-38.

Ástand

  • Skorið hefur verið af efri spássíu.
  • Skriftin er máð, einkum á rektósíðu.
  • Blaðið hefur verið brotið við spássíu, e.t.v. notað í band.
  • Gatað við innri spássíu, e.t.v. verið tvinnað saman við annað blað. Göt eftir saum víðar.

Skrifarar og skrift

Óþekktur skrifari, textaskrift.

Spássíugreinar og aðrar viðbætur

Spássíugrein á versósíðu.

Band

Band frá mars 1959 (246 mm x 199 mm). Pappakápa með línkili, límt á móttak. Í öskju ásamt öðrum AM 567 4to-brotum.

Fylgigögn

  • Tveir fastir seðlar fremst með hendi Árna Magnússonar með titli sögunnar og upplýsingum um feril, versóhliðar auðar.
  • Seðill 1 (150 mm x 91 mm): Úr Mágus sögu.
  • Seðill 2 (42 mm x 89 mm) Úr Mágus sögu frá monsieur Ormi Daðasyni 1721.
  • Laus seðill frá Kaupmannahöfn um forvörslu AM 567 4to-brotanna í öskju með brotunum.

Uppruni og ferill

Uppruni

  • Handritið var skrifað á Íslandi. Það er tímasett til ca 1400 ( ONPRegistre 1989:455 ), en Kålund tímasetti til 15. aldar ( Katalog I 1889:725 ).
  • Handritsbrotin í AM 567 I-XXVI 4to eru kölluð Fabulosæ Islandorum Historiæ á seðli með hendi Árna Magnússonar sem fylgir XXVI.

Ferill

Árni Magnússon fékk frá Ormi Daðasyni 1721 (sjá seðil).

Aðföng

Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við handritinu 26. mars 1992.

Aðrar upplýsingar

Skráningarferill

ÞS endurskráði samkvæmt reglum TEI P5 25. maí 2009.

ÞS færði inn grunnupplýsingar 7. nóvember 2002.

Kålund gekk frá handritinu til skráningar í október 1887 ( Katalog (I) 1889:721-729 (nr. 1415) ).

GV sló inn texta af seðlum Árna Magnússonar undir umsjón ÞS og með hliðsjón af gögnum frá MJ.

Viðgerðarsaga

Viðgert í Kaupmannahöfn í mars 1959, límt á móttak í pappakápu. Brotin AM 567 I-XXVI 4to eru saman í öskju, utan VI sem sér í spjöldum.

Myndir af handritinu

  • Svart-hvítar ljósmyndir á Det Arnamagnæanske Institut í Kaupmannahöfn.
  • Svart-hvítar ljósmyndir á Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi, keyptar af Arne Mann Nielsen í janúar 1978.

Notaskrá

Titill: Katalog over Den Arnamagnæanske Håndskriftsamling
Ritstjóri / Útgefandi: Kålund, Kristian
Titill: Ordbog over det norrøne prosasprog: Registre
Ritstjóri / Útgefandi: Den arnamagnæanske kommision
Lýsigögn
×
  • Land
  • Ísland
  • Staður
  • Reykjavík
  • Stofnun
  • Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum
  • Vörsludeild
  • Handritasvið
  • Safn
  • Safn Árna Magnússonar
  • Safnmark
  • AM 567 XVII γ 4to
  • Efnisorð
  • Riddarasögur
  • XML
  • Opna XML færslu  
  • PDF í einni heild
  • UpplýsingarUpplýsingar
  • Athugasemdir
  • Gera athugasemdir við handrit  
Efni skjals
×
  1. Mágus saga

Lýsigögn