„… (sk)ildir en brynjur slitna …“
„… sínum ríkjum með sæmd …“
Brot, einungis niðurlag.
„… [frásagnar] að einn [göfugur] [keis]ari réð fyrir Saxlandi …“
„… [h]yggindi var eða bragðvísa eða til m[álsnillda] …“
Brot, einungis upphaf.
Blaðmerking með rauðu bleki, r-v.
Blaðstrimill.
Hluti af ytri dálki, en skorið hefur verið langsum beggja megin og einnig að ofan. Texti er skertur vegna afskurðarins, vantar bæði framan og aftan af hverri línu.
Óþekktur skrifari, textaskrift.
Leifar af lituðum upphafsstaf (gulur).
Leifar af rauðum fyrirsögnum.
Á versósíðu hefur titlum verið bætt við neðst og að um sé að ræða upphaf Konráðs sögu.
Band frá mars 1959 (246 mm x 199 mm). Í plastvasa sem festur er á móttak í pappakápu með línkili. Í öskju ásamt öðrum AM 567 4to-brotum.
Laus seðill frá Kaupmannahöfn um forvörslu AM 567 4to-brotanna í öskju með brotunum.
Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við handritinu 26. mars 1992.
Viðgert í Kaupmannahöfn í mars 1959, sett í plastvasa sem festur er á móttak í pappakápu. Brotin AM 567 I-XXVI 4to eru saman í öskju, utan VI sem sér í spjöldum.