„Söguþáttur af Þorsteini forvitna“
„Þorsteinn hét maður íslenskur …“
„… og skildust þeir konungur með hinni mestu vináttu.“
Og lýkur þar frá Þorsteini hinum forvitna.
Handritið hefur verið blaðmerkt síðar með rauðu bleki 1-4.
Tvö tvinn.
Með hendi Árna Magnússonar, árfljótaskrift.
Band frá árunum 1772-1780 (214 mm x 168 mm x 2 mm). Pappaspjöld klædd handunnum pappír. Safnmark og titill skrifað framan á kápu. Blár safnmarksmiði á kili. Spjaldblöð úr prentaðri bók.
Fastur seðill (152 mm x 105 mm), sem límdur er við blað 2r, með hendi Árna Magnússonar, með upplýsingum um forrit þessa handrits og annars handrits sama efnis, sem einnig er glatað: „Þessi þáttur er ritaður eftir hendi síra Jóns í Vilingaholti, og var hann í bók í folio, er ég fékk af sýslumanninum Jóni Þorlákssyni. Þátturinn með hendi síra Jóns er nú fortærður, eftir að þetta mitt er, qvad ad verba, accuratissimè þar við confererað. Literaturam hefi ég alls staðar forbetrað. Verte. Þessi þáttur var og í bók með hendi Sigurðar á Ferju, eldri en 1683 er ég keypti af nefndum Sigurði 1711 og tók í sundur. Var hann þar auðsýnilega ritaður eftir eins exemplari, sem þetta er, en sums staðar misskrifaður. Hirti ég því eigi um hann, og reif hann i sundur.“
Handritið var skrifað í Kaupmannahöfn. Það er uppskrift Árna Magnússonar eftir handriti séra Jóns Erlendssonar í Villingaholti, sem var í bók sem Árni fékk frá Jóni Þorlákssyni sýslumanni (sbr. seðil, sjá einnig AM 562 f og i 4to). Þetta handrit Jóns er nú glatað. Kålund tímasetti uppskrift Árna til um 1700 ( Katalog I 1889:715 ).
Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við handritinu 3. mars 1978.
Matthias Larsen Bloch batt á árunum 1772-1780.