Band frá nóvember 1975 (213 mm x 190 mm x 10 mm). Pappaspjöld klædd fínofnum líndúk. Grófari dúkur á kili og hornum. Saumað á móttök. Saurblöð tilheyra bandi. Handritið liggur í öskju ásamt eldra bandi.
Pappaband frá árunum 1772-1780 fylgir með í öskju.
Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við handritinu 19. febrúar 1976.
Viðgert og bundið af Birgitte Dall í nóvember 1975.
Matthias Larsen Bloch batt á árunum 1772-1780.
Svart-hvítar ljósmyndir á Det Arnamagnæanske Institut í Kaupmannahöfn.
„Þáttur úr Vopnfirðinga sögu, af Þorsteini stangarhögg Þórarinssyni í Sunnudal“
„Maður hét Þórarinn, er bjó í Sunnudal …“
„… hefur margt manna frá þeim komið. Og lýkur hér frá þeim að segja.“
stangarhögg bætt við í titilinn innan sviga af Árna Magnússyni.
Handritið hefur nýlega verið blaðmerkt með blýanti 1-5.
Stakt blað og tvö tvinn.
Með hendi Ketils Jörundssonar, síðléttiskrift.
Lesbrigðum og leiðréttingum bætt við af Árna Magnússyni.
Handritið er skrifað á Íslandi. Það er tímasett til 17. aldar í Katalog I 1888:714 , en virkt skriftartímabil Ketils var ca 1620-1670.
„… við fá þyki mér að meta þá sem hér …“
„… hefur margt manna frá þeim komið. Og lýkur hér frá þeim að segja.“
Vantar framan af.
Upphafið er líklega að finna á bl. 13v, útkrassað og ólæsilegt.
„Saga af Þorsteini hvíta“
„[M]aður hét Ölver hinn hvíti …“
„… sem segir í Vopnfirðinga sögu.“
Og lýkur hér sögu Þorsteins hins hvíta.
Handritið hefur verið blaðmerkt nýlega með blýanti 6-13.
Fjögur tvinn.
Óþekktur skrifari, fljótaskrift.
Handritið er skrifað á Íslandi. Það er tímasett til 17. aldar ( Katalog I 1889:714 ).