„Hér hefur upp Mágus sögu“
„Játmundur hefur kóngur heitið …“
„… hér fá eg alla menn hræd …“
Fornsögur Suðurlanda, 1884s. 1-42.
Óheil.
Með tilheyrandi þáttum.
„Meistari Virgilíus hefir samansett marga fræði …“
„… Guð gefi oss alla góða daga utan enda. A M E N.“
Editiones Arnamagnæanæ, 1963B 22s. 1-66.
„Hér hefur upp sögu Þorsteins Víkingssonar“
„Það er upphaf sögu þessari …“
„… Guð gefi oss alla góða daga utan enda. A M E N.“
Notað í lesbrigðaskrá neðanmáls í Fornaldarsögur Norðurlanda, 1829IIs. 381-459.
Óheil.
Óþekktur skrifari, árléttiskrift.
Rauðrituð fyrirsögn á bl. 1r, 35r.
Leifar af lituðum kaflafyrirsögnum víða.
Flúraðir upphafsstafir í tveimur litum (rauðum og bláum sem felldir eru saman í mynstur) í upphafi sagna, bl. 1r (I), 25r (M, sem er máð), 35r (Þ). Minni upphafsstafir en litskreyttir (rauðir, grænir, bláir; einstaka með innfelldu mynstri) eru víða. Sums staðar aðeins leifar.
Pennadregið laufskreyti víða neðst á spássíum, í hægra horni leturflatar, til dæmis á bl. 2r, 16r, 30r, 34r, 36r.
Band frá árunum 1963-1965 (280 mm x 246 mm x 50 mm). Pappaspjöld klædd fínofnum líndúk. Leður á kili og hornum. Saumað á móttök. Saurblöð tilheyra bandi. Handritið liggur í öskju.
Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við handritinu 1. nóvember 1993.
Viðgert og bundið í Kaupmannahöfn 15. febrúar 1963 - 14. desember 1965.