Skráningarfærsla handrits

PDF
PDF

AM 555 g 4to

Kjalnesinga saga ; Ísland, 1675-1699

Tungumál textans
íslenska

Innihald

1 (1r-22v)
Kjalnesinga saga
Titill í handriti

Hér byrjar Búa sögu

Upphaf

Helgi bjóla son Ketils flatnefs nam Kjalarnes …

Niðurlag

… og er mikil ætt frá honum komin

Baktitill

og endar þar með Kjalnesinga sögu.

2 (22v-27v)
Jökuls þáttur Búasonar
Titill í handriti

Nú byrjar söguna af Jökli syni Búa Andríðarsonar

Upphaf

Jökli þótti nú svo illt verk sitt …

Niðurlag

… og kunnum vér eigi lengra frá Jökli að segja.

Skrifaraklausa

Og endir með því hans sögu þó illa sé skrifuð. Endir.

3 (27v)
Ála flekks saga
Titill í handriti

Saga af Ála-flekk

Athugasemd

Einungis upphaf (5 línur auk fyrirsagnar), útkrassað og ólæsilegt að mestu leyti.

Efnisorð

Lýsing á handriti

Blaðefni
Pappír.
Blaðfjöldi
27 blöð (193 mm x 155 mm).
Tölusetning blaða

Handritið hefur verið blaðmerkt síðar 1-27.

Kveraskipan

Fimm kver.

  • Kver I: bl. 1-4, 2 tvinn.
  • Kver II: bl. 5-8, 2 tvinn.
  • Kver III: bl. 9-16, 4 tvinn.
  • Kver IV: bl. 17-24, 4 tvinn.
  • Kver V: bl. 25-27, 3 stök blöð.

Umbrot

  • Eindálka.
  • Leturflötur er ca 145-155 mm x 130-140 mm.
  • Línufjöldi er 23-29.
  • Griporð.
  • Sagan endar í totu (bl. 27v.

Ástand

Krassað yfir 6 línur á bl. 27v.

Skrifarar og skrift

Óþekktur skrifari, fljótaskrift.

Spássíugreinar og aðrar viðbætur

Leiðréttingar og athugasemdir á spássíum blaða 1r, 10r, 21v.

Band

  • Eldra pappaband frá c1772-1780 (199 mm x 163 mm x 7 mm). Pappaspjöld og kjölur klædd handunnum pappír. Spjaldblöð úr prentaðri bók. Titill og safnmark skrifað framan á kápu. Blár safnmarksmiði á kili.

Uppruni og ferill

Uppruni

  • Handritið var skrifað á Íslandi. Það er tímasett til loka 17. aldar í  Katalog I , bls. 705.
  • Samkvæmt AM 477 fol. hafa auk þess verið í handritinu AM 555 4to: Úlfs saga Uggasonar, Stjörnu-Odda draumur, Þorsteins draumur Síðu-Hallssonar, Þorsteins þáttur Þorvarðarsonar, Hænsa-Þóris saga, Vatnsdæla saga - allar með hendi Ásgeirs Jónssonar (nema sú fyrsta) en þær vantar nú (sjá Kålund).

Aðföng

Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við handritinu 21. nóvember 1975.

Aðrar upplýsingar

Skráningarferill

  • ÞS skráði samkvæmt reglum TEI P522. apríl 2009 og síðar.
  • ÞS færði inn grunnupplýsingar 1. nóvember 2001.
  • Kålund gekk frá handritinu til skráningar 23. september 1887(sjá Katalog I 1889:705 (nr. 1376) .

Viðgerðarsaga

Matthías Larsen Bloch batt á árunum 1772-1780.

Myndir af handritinu

  • Stafrænar myndir á www.Sagnanet.is.
  • Svart-hvítar ljósmyndir á Det Arnamagnæanske Institut í Kaupmannahöfn.

Notaskrá

Titill: Katalog over Den Arnamagnæanske Håndskriftsamling
Ritstjóri / Útgefandi: Kålund, Kristian
Lýsigögn
×

Lýsigögn