Skráningarfærsla handrits

PDF
PDF

AM 555 f 4to

Gunnars saga Keldugnúpsfífls ; Ísland, 1675-1699

Tungumál textans
íslenska

Innihald

(1r-6r)
Gunnars saga Keldugnúpsfífls
Titill í handriti

Saga af Gunnari Keldugnúpsfífli

Upphaf

Þorgrímur hét maður, hann bjó …

Niðurlag

… þótti það allt svo miklir menn fyrir sér.

Baktitill

Og lýkur hér þessari sögu.

Lýsing á handriti

Blaðefni
Pappír.
Blaðfjöldi
6 blöð (210-214 mm x 162-169 mm). Blað 6v er autt.
Tölusetning blaða

  • Handritið hefur verið blaðmerkt síðar með rauðu bleki 1-6.

Kveraskipan

  • Eitt kver, 3 tvinn.

Umbrot

  • Eindálka.
  • Leturflötur er ca 175-180 mm x 140-143 mm.
  • Línufjöldi er 39-42.
  • Griporð.

Skrifarar og skrift

Ein hönd. Skrifari óþekktur, blendingsskrift.

Band

Band frá árunum 1772-1780 (217 mm x 173 mm x 3 mm). Pappaspjöld klædd handunnum pappír. Spjaldblöð úr prentaðri bók. Safnmark og titill skrifað framan á kápu. Blár safnmarksmiði á kili. Spjaldblöð úr prentaðri bók.

Uppruni og ferill

Uppruni

  • Handritið var skrifað á Íslandi. Það er tímasett til loka 17. aldar í  Katalog I , bls. 705.
  • Samkvæmt AM 477 fol. hafa auk þess verið í handritinu AM 555 4to: Úlfs saga Uggasonar, Stjörnu-Odda draumur, Þorsteins draumur Síðu-Hallssonar, Þorsteins þáttur Þorvarðarsonar, Hænsa-Þóris saga, Vatnsdæla saga - allar með hendi Ásgeirs Jónssonar (nema sú fyrsta) en þær vantar nú (sjá Kålund).

Aðföng

Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við handritinu 11. nóvember 1975.

Aðrar upplýsingar

Skráningarferill

  • ÞS skráði samkvæmt reglum TEI P521. apríl 2009 og síðar.
  • ÞS færði inn grunnupplýsingar 1. nóvember 2001.
  • Kålund gekk frá handritinu til skráningar 23. september 1887(sjá Katalog I 1889:705 (nr. 1375) .

Viðgerðarsaga

Matthías Larsen Bloch batt á árunum 1772-1780.

Myndir af handritinu

  • Stafrænar myndir á www.sagnanet.is.
  • Svart-hvítar ljósmyndir á Det Arnamagnæanske Institut í Kaupmannahöfn.

Notaskrá

Titill: Katalog over Den Arnamagnæanske Håndskriftsamling
Ritstjóri / Útgefandi: Kålund, Kristian
Lýsigögn
×

Lýsigögn